Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Blaðsíða 106
Tímarit Máls og menningar
þeir öðlast völd til að ákvarða tilveru annarra, en skólaganga og frami hefur
kostað þá frelsið.
Scherfig sýnir hvernig kúgunin á sér stað í skólanum með langri röð af smá
atburðum úr hversdagslífinu. Námsefnið sem nemendurnir tileinka sér er úrelt
ogán samhengis við líf þeirra. Ef þeir svo mikið sem opna munninn án þess að
hafa fengið skipun um það eða ef þeir dirfast að hugsa sjálfstæða hugsun þagga
kennararnir niður í þeim með harðri hendi. Einn nemandinn sem hefur lifandi
áhuga á náttúrufræði, svo lifandi að hann veit jafn mikið og kennarinn, verður
að láta sér lynda lægstu einkunn, því hann þekkir ekki takmörk sín. Kennararnir
nota aga og einkunnagjöf til að svínbeygja einstaka nemendur og brjóta niður
alla samstöðu innan bekkjarins.
Gamla linditréð í skólaportinu er aðaltákn bókarinnar fyrir eyðileggingu
skólans á einstaklingseðli nemendanna:
— I miðju skólaportinu stendur gamalt holufyllt linditré með bekk utan um sig.
I áraraðir hefur það verið lofsungið af hverjum dönskukennaranum á fætur
öðrum og gömlum lærisveinum með ljóðræna hæfileika. Og það á lofgjörðina
skilið þvi það sætir undrum að það skuli hafa tórt og fundið næringu í súrri
moldinni undir malbikuðu skólaportinu. (58—59)
Gamla holufyllta linditréð er tekið að laufgast á ný. Nægjusamt og hógvært
stendur það og sýgur næringu úr súrum jarðveginum undir malbikinu og ef til
vill gæti það alls ekki lifað ef það væri flutt yfir í góða mold (168).
I seinni tilvitnuninni er bent á höfuðvandamálið í þróunarsögu Teodórs
Amsted: að hinn kúgaði geti orðið svo kúgaður og framandi sjálfum sér að hann
taki sviptingu sjálfsforræðis fram yfir frelsi.
Auk kúgunar einstaklingsins inniheldur lýsingin á skólanum annað atriði
sem virðist vega upp á móti henni: samkeppnina. Að vísu hafa nemendurnir sem
hópurengin áhrif á stöðu sína, en í samkeppninni um hylli kennaranna og efsta
sætið í bekknum hefur hver einstakur möguleika á að hefja sig upp yfir
kúgunina. Samkeppnin virðist vega upp á móti kúguninni, en það er blekking
því innbyrðis samkeppni nemendanna er, þegar grannt er skoðað, aðferð skóla-
kerfisins til að brjóta niður innbyrðis samstöðu þeirra. Grimmileg undirokun
einstaklingsins þrífst þannig innan skólans í sambýli við samkeppni í anda
frjálshyggju milli hinna undirokuðu. í skáldsögunni er líka tákn fyrir þennan
þátt skólakerfisins, krítarhringur sem glaðbeittur leikfimiskennari teiknar á
gólfið í salnum í síðasta tímanum fýrir jól.
480