Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Side 127

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Side 127
Umsagnir um bœkur eins og sú fyndni sé fremur til að draga úr viðkvæmninni en voninni. Höf. er hins vegar lítill hlátur i hug í næstu sögu, Hagnýti stríðs og óvinaflugvéla, sem er bernskuminning um annað strið. Erlendir hermenn koma upp í afdali, kunna sig ekki og haga sér flflslega. Höfundur bregður upp svipmyndum af kynnum sínum af hernáminu, dregur fram muninn á bretum og könum og segir lifandi smásögur af atvikum og einstakl- ingum. Svo þjappast frásögnin á haustdegi 1944, þegar striðið fær á sig annan og óhugnanlegri svip: Við megum ekki gleyma því í fyndnum og fjörugum minningum að þetta strið var ógeðslegt enda rekið af peningamönnum sem var alveg sama um fólk en vildu selja hergögn. Þau hergögn þarf líka að nota uppi i Borgarfirði, til þess eru þau þar, og menn nota tækifærið þegar óvinaflugvél flýgur yfir. Ohugnaðurinn tekur á sig fáránlega mynd þegar hersveitirnar flykkjast inn á heiðar eftir þessari einu flugvél sem þar að auki er hröpuð — og þurfa meira að segja að drekka í sig kjark á leiðinni! Orlög gestanna af hvaða þjóðerni sem þeir eru valda manni þó ekki andvöku. Hins vegar er þarna sagt frá einum bónda sem verður fyrir vondri reynslu þennan dag. Sá maður er hluti af umhverfinu og örlög hans verða lesanda hugstæð. Vandmeðfarið vopn, írontan I næstu þrem sögum felur höfundur sig á bak við frásögn fólks sem er honum óskylt að skoðunum og upplagi, hann notar íroníska frásagnaraðferð sem Jakobína Sigurðardóttir beitir af svo mikilli leikni í Snörunni. í sögunni Hvað gagnar að biðja Guðbein er það ringluð kona sem segir frá furðulegum atvikum sem leiddu til þess að hún glataði þeim systkinum sem hún átti að gæta. Það er bernskuminning af öðru tagi en hinar fyrri, óhugnanleg mar- tröð sem er sárt að rifja upp enda hefur sögukona bælt reynsluna i undirvitund- inni og minningin er óljós og flókin. Sagan skilar sér því illa til lesanda, einkum af því hvað aðalpersónan er óglögg. Vamarraða mannkynslausnara er hins vegar glögg og hörð frásögn fullorðins manns fyrir dómstóli, gáfaðs mennta- manns og vel máli farins, en hugur hans er þó ekki síður afskræmdur en konunnar áðan. Persóna hans verður æ skýrari eftir því sem á liður óhugnanlega frásögn hans, hann er fanatíker með frelsaratilhneiging- ar, maður sem vill halda utan um sauði sina i hjörðinni — umfram allt með góðu, en illu ef það tekst ekki. Fyrir honum er það ekkert vafamál að menn eiga að lifa einföldu lífi og treysta á forsjá hins sterka einstaklings, og hann er ekki heldur i vafa um að hann sé sjálfur slikur einstaklingur. Sögumaður er eins og konan i fyrri sög- unni blindur á þjóðfélagsmeinin en skilur allt sínum miðaldalega trúarskilningi. En þrátt fyrir truflun þessa mannkynsfrelsara tekst höf. að magna með lesanda undar- lega samúð með þessum manni sem hefur látið hetjuhugsjón sína leiða sig svona á villigötur og þar af leiðir að þessi saga verður miklu sterkari en sagan um Guð- bein og hina skuggana í holunni í bílskúr prestsins. Partísaga um frændráð er frásaga smá- braskara, iítils kalls og lítt merkilegs. Per- sóna hans er mjög trúverðug en vekur 501
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.