Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 128

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 128
Tímarit Máls og menningar ekki neina samúö meÖ lesanda, hann er bara svolítiÖ peð í stórri skák en sem á sér eflaust marga líka. Höfundur getur illa dulið fyrirlitningu sína á honum. Jafnvel þegar honum er fórnað i skákinni snertir það mann ekkert, því hann hefur svikið allt sem honum var trúað fyrir. Líkindi í ólíkindum Og þá kemur að hinum eiginlega kjarna sagnanna sem er þeim sameiginlegur eins og 1. persónu formið. Þær fjalla allar um þróun íslensks samfélags síðustu fjörutíu árin eða síðan skömmu eftir að höfundur bókarinnar fæddist. En frá mismunandi sjónarhóli eins og nú hefur verið rakið litillega. I fyrstu sögunni í bókinni lýsir höf. því samfélagi sem hér var fyrir seinna heims- stríð i örlitlu dæmi, dæminu um nýtnina og limið dásamlega sem limir allt. Með tilkomu „límsins sem límir allt“ hófst nýtt blómaskeið í viðgerðum á brotnu leirtaui. Þótt diskur, eða jafn- vel bolli, brotnaði mélinu smærra var nú unnt að líma með þessu undralyfi það sem vonlaust hafði verið með öllu að bora. Margar voru þær ferðirnar sem börn voru send með túpuna góðu á milli bæja, ýmist til að fá að láni eða lána. Þetta var á hinum sælu tímum samhyggju og félagsanda, — áður en einstaklingshyggja hófst til sveita með viðeigandi samkeppni og hagvexti. (8) Þetta blómaskeið brotins leirtaus stóð ekki lengi, og í hverri sögunni á fætur annarri lýsir Böðvar því háskalega samfé- lagi mannlegum sálum sem þróaðist upp úr því. Með því að setja söguna um minkinn sem berst til landsins eftir að erlendur her hefur tekið að sér varnir þess og sögur úr stríðinu fremst í bókina legg- ur hann áherslu á að i hersetu liggja rætur meinsins. Hinar ýmislegu afleiðingar koma svo fram í sögunum á eftir. Baráttuleikir konunnar i Hvað gagnar að biðja Guðbein og systkina hennar fyrir réttlætinu slævast og sofna út af þegar þau fara að góna ofan í holuna í bílskúrsgólfi prestsins, sem gæti m.a. verið tákn fyrir kanasjónvarpið. Mannkynslausnarinn sér að sauðirnir hans hafa selt sálu sína fyrir vöru, en hann áttar sig ekki á því i trúar- ofsa sínum að djöfullinn er í þessu tilviki stríðsgróðinn sem umhverfir fólki og heimtar meira framboð og krefst meiri eftirspurnar. Smábraskarinn í Partisögu hefur selt ættaróðal sitt fyrir peninga, svikið landið og sett aurana í heildsölu, enda hefur hann unnið hjá hernum: /.../ við bræður fengum allir vinnu í lengri eða skemmri tíma á beisnum kringum tvítugsaldurinn. Dvölin á beisnum kom ekki bara undir mann fótunum fjárhagslega, hún kom lika fýrir mann vitinu. (88) Með talsverðri fyrirhöfn kemst hann að stórfelldum fjársvikamálum frænda síns eftir að honum hefur verið sparkað út úr bisnisnum, en sál hans er löngu seld fyrir lítið og hann er auðkeyptur til að þegja yfir öllu saman. Þetta er þá orðið um okkar starf i sjö hundruð sumur. En er hvergi glæta fram- undan? Varla. 502
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.