Tímarit Máls og menningar - 01.09.1984, Page 10
Ádrepur
Vésteinn Ólason
Hvað er að gerast hjá Máli og menningu?
Það eru erfiðir tímar í bókaútgáfu. Erfiðleikarnir stafa vitaskuld einkum af því
að kaupmáttur alls þorra fólks á landinu hefur dregist stórlega saman. Eins og
allir vita tók verðlag enn eitt stökk upp á við eftir að launahækkanir höfðu verið
stöðvaðar í fyrra. A síðara helmingi ársins stóð fjöldi heimila frammi fyrir því
að óhjákvæmileg útgjöld vegna húsnæðis, fæðis og klæða gleypti allt sem inn
kom og stundum ríflega það. Sá afgangur sem þetta fólk hafði haft til að veita sér
jafnsjálfsagðan „munað“ og að kaupa eina og eina bók handa sjálfu sér eða
vinum og vandamönnum, var ekki lengur til. Ekki þarf að orðlengja um þá
þróun sem orðið hefur á þessu ári. Kaupmætti hefur enn hrakað.
Við þessar aðstæður harðnar auðvitað enn samkeppni bókarinnar við annars
konar söluvöru á menningarmarkaði. Þar hefur fjölbreytnin aukist og er það í
sjálfu sér ágætt ef þeir kostir sem völ er á færa mönnum ekki andlega fátækt
heldur andlegan auð. En hvað sem líður nýjum menningarrásum, svo sem
hljómflutningstækjum, myndböndum o.fl., er bóklestur enn tómstundaiðja
margra Islendinga og þarf naumast að óttast verulega um stöðu hans ef á
boðstólum er nóg úrval góðra bóka á hóflegu verði.
Það er ekki á færi bókmenntafélags að ráða fram úr vanda þjóðarinnar í
efnahagsmálum (virðist reyndar standa þversum í þeim sem hafa tekið starfið að
sér). Stjórnvöld gætu á hinn bóginn ef þeim sýndist svo, styrkt bókmenningu í
landinu með því að fella niður söluskatt á bókum og viðurkenna þær þannig
sem lífsnauðsynjar ásamt soðningu og landbúnaðarvörum. En á þessu sviði
þýðir ekki að treysta á neinar stjórnvaldsaðgerðir. Við ríkjandi aðstæður er
bókmenntafélagi eins og Máli og menningu skylt að reyna allar leiðir til að gefa
út sem ódýrastar bækur, svo að það verði helst engum manni ofraun að eignast
nokkrar bækur á ári. Það hefur frá upphafi verið markmið Máls og menningar
að framleiða ódýrar og vandaðar bækur handa íslenskum almenningi. A undan-
förnum árum hefur efni bóka og útlit skipt miklu meira máli en verð í keppninni
um hylli lesenda og hin gamla hugsjón um ódýrar bækur, sem vitaskuld var
sprottin upp úr jarðvegi kreppuáranna þegar Mál og menning var að verða til,
hefur virst skipta minna máli. Nú hyggst félagið bregðast við fjárhagskreppu
með því að leggja meiri áherslu á lágt verð en gert hefur verið um hríð.
Hvaða hugsjónir sem menn kunna að hafa um framtíðarskipan mannfélagsins
360