Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Side 7
Frá útgáfunni
Bækur að vori
Þegar þetta annað hefti kemur út verða nokkrar af vorbókum Máls og menning-
ar komnar út, og aðrar væntanlegar. Um er að ræða barnabækur, ljóðabækur og
handbækur, og það er von okkar að félagsmenn taki þeim vel þótt árstíminn sé
óvenjulegur.
Tvær barnabækur eru þegar komnar út. Andrés Indriðason hefur verið einn
vinsælasti unglingabókahöfundur landsins undanfarin ár, en bókin sem hann
sendir frá sér nú er fyrir yngri börn og heitir Elsku barn! Skemmtileg bók fyrir
krakka sem komnir eru á sögualdurinn, myndskreytt af Brian Pilkington. Elsku
barn! var sumargjöf Máls og menningar og fylgdi henni sígild barnasaga, Elsku
Míó minn eftir Astrid Lindgren í þýðingu Heimis Pálssonar. Sú bók kom fyrst
út 1977 og seldist þá upp á nokkrum vikum. Núna er hún endurútgefin sem
BARNAUGLA rétt einsog Bródir minn Ijónshjarta fyrir síðustu jól. Ekki
trúum við öðru en að ódýrum kiljum verði líka vel tekið á öðrum árstímum.
Þá eru nýútkomnar tvær ljóðabækur svipaðar þeim sem Mál og menning
hefur gefið út að vorlagi undanfarin ár. Þær eru eftir tvö ung ljóðskáld, þá Gyrði
Elíasson og Sigfús Bjartmarsson, en báðir hafa sent frá sér ljóðabækur áður. Bók
Gyrðis nefnist Eins konar höfublausn en bók Sigfúsar Hlýja skugganna og eru
þær mjög ólíkar bæði hvað varðar viðfangsefni og ljóðmál. Forvitnilegar bækur
fyrir alla ljóðaunnendur.
Loks er von á tveimur handbókum. Annars vegar er rit í nýjum flokki
blómabóka. Það er um kaktusa og segir í stuttu og skýru máli, með hjálp
teikninga og litmynda, frá 156 kaktusum sem algengir eru í heimahúsum.
Þýðandi er Alfheiður Kjartansdóttir, en ritstjóri hins nýja flokks er Hafsteinn
Hafliðason. Hugmyndin er að fólk geti orðið áskrifendur að flokknum í heild
og sparað sér með því stórfé, en stakar bækur verða líka til sölu í búðum.
I samvinnu við tækninefnd Knattspyrnusambands Islands mun Mál og
menning snemmsumars senda frá sér bók um það sem þá er efst á baugi hjá ótal
ungmennum: fótbolta! Þetta er knattspyrnuskóli þar sem ungum strákum og
stelpum er kennd knattmeðferð, sóknarleikur og tækni. Bókinni fylgir mynd-
band, þar sem æfingarnar eru sýndar, en auk þess eru á myndbandinu klippur úr
góðum leikjum og viðtöl við íslenska knattspyrnumenn. Skólinn er hollenskur
að stofni og fer nú sigurför um Evrópu. Sigurður Svavarsson hefur þýtt og
staðfært verkið.
141