Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 14
Tímarit Máls og menningar
manna. Hann sá um umbrotið á einu hefti Birtings með þeim afleiðingum
að fjöldi áskrifenda mun hafa sagt tímaritinu upp og ritstjórn lá við
klofningi.3 Utgáfufyrirtækið Forlag ed stofnaði hann ásamt Einari Braga og
það gaf út ljóðrenninginn I hökli úr snjó sem hlaut svipaðar viðtökur og
Birtingsheftið. Dieter vann fyrir sér sem hönnuður og starfaði um skeið
með Magnúsi Pálssyni og þá opnuðu þeir búðina Kúluna að Bergstaðastræti
og höfðu þar til sölu ýmisskonar muni, þar á meðal húsgögn, veggfóður og
bækur Dieters. Dieter hafði nokkur sambönd við erlenda framúrstefnulista-
menn sem margir tengdust Fluxus hreyfingunni svonefndu. Segja má að
þessum straumi hafi Dieter smám saman veitt inn í íslenskt listalíf og áhrif
hans á íslenska samtímalist eru því gífurleg, bæði bein og óbein. Bæði
Súmmarar og yngri menn hafa notið góðs þar af. „An Dieters hefði þetta
kannski allt saman farið fram hjá okkur,“ hefur Magnús Pálsson sagt.4 Hvað
sem því líður þá er ljóst að vegna þessara áhrifa er íslenskt listalíf, eða að
minnsta kosti hluti þess, í beinum tengslum við hræringar í evrópskri list og
íslensk listsköpun fer fram samtímis og í sama heildarumhverfi og aðrar
evrópskar listastefnur á þessu tímabili, 1965 — 1980. Þessu til stuðnings má
vísa til Súm sýninganna 1969 og 1972 þar sem fjöldi erlendra listamanna
sýndi verk sín við hlið íslenskra starfsbræðra sinna.
I bókagerð sinni hefur Dieter Roth komið víða við, leitað fanga á ólíkustu
miðum og beitt fjölbreytilegustu aðferðum. Fyrstu bækur hans voru gefnar
út í Reykjavík og voru ekki teiknaðar eða málaðar, heldur klipptar og
skornar í litpappír og eru eins konar optísk abstraktverk þar sem hver
blaðsíða grípur inn í aðra þegar bókinni er flett. Flettanleiki bókarinnar er
því höfuðatriði í gerð þessara verka. Fyrsta bókin af þessu tagi nefndist
réttilega Barnabók, enda er ekki óalgengt að göt séu gerð í síðurnar á barna-
bókum og leikið sé með ýmislegt óvænt sem af því kann að leiða. I öðrum
bókum frá þessu skeiði stendur Dieter nær konkret ljóðlistinni og notar
bókstafi og leturgerðir sem uppistöðu í verkin og blandar stundum saman
þessum tveimur aðferðum, skurði og bókstöfum, í sömu bókinni.
Um 1960 tekur Dieter upp aðrar aðferðir við bókagerð og nálgast m. a. í
þeim ready-made hugmyndina. Nú leggur hann megináherslu á aðra eigin-
leika bóka, svo sem þykkt, stærð og síðufjölda. Aðferðin fólst einfaldlega í
því að taka bunka af reykvískum dagblöðum, skera hann í ferning af
hentugri stærð og binda inn. Þekktust þessara bóka er Bók 3a sem út kom
1961. Tilbrigði við sama stef eru míkróbækurnar svonefndu, en hin fyrsta
þeirra, Daily Mirror book, var búin til með því að skera 2x2 cm úr bunka af
dagblaðinu The Daily Mirror og binda inn. Þessar bækur standa því mitt á
milli handunninna skúlptúrbóka og venjulegra fjöldaframleiddra bóka.
En Dieter Roth hefur einnig notað hefðbundið prentverk með ýmsum
148