Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Side 22

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Side 22
Tímarit Máls og menningar ætluð eru til sýningar og öfugt. Jafnframt er yfirleitt um að ræða svipuð við- fangsefni í myndum og bókum og bóklistin þannig hluti af sköpunarstarfi listamannanna. Þannig eru til dæmis bækur Helga Friðjónssonar fullar af sömu ertni og myndir hans eru orðnar alræmdar fyrir, þar sem ýmiss konar mannverur og kynjaverur er að finna í mismunandi vandræðalegum að- stæðum og bókverk hans eru einatt byggð upp á svipaðan hátt og aðrar myndir hans. Helgi hefur einnig mikið notað texta, einkum í fyrri bókum, og jafnvel skrifað heilu sögurnar, bæði með tilvísun til teiknimyndasagna og skáldsagna. Bækur sumra myndlistarmanna eru tíðum tengdar innsetningum (installa- tions) og setja þær fram í bókarformi eða eru fylgirit með þeim eins og sýningarskrár. Þannig er til dæmis um nokkur verk Ingólfs Arnarssonar, en hann notar annaðhvort texta eða myndir í bókum sínum en blandar þessu tvennu ekki saman eins og til að mynda Helgi gerir. Textinn vísar þá til myndrænnar hugsunar eins og til dæmis í Sviðsmyndum sex ævintýra. Þær bækur sem ekki hafa að geyma texta eru þá yfirleitt án titils. Sem dæmi um slíka bók má nefna þá sem mætti ef til vill kallast „Yfirlýsing" en á kápu hennar gefur að líta daufa mynd af sólinni og síðan eru teikningarnar í bók- inni unnar á stensil á þann hátt að aðeins sterkustu drættir þeirra ná að prentast og útkoman verður eins konar yfirlýst mynd af því sem teiknað var. Prentunin breytir þannig innihaldi verksins og birtir það undir sjónar- horni sem kynni jafnvel að koma höfundinum á óvart. Slíkt samspil áætlunar og tilviljunar hefur náð nokkrum vinsældum meðal yngri manna. Eggert Pétursson sem hefur einna mest unnið með ljósmyndatækni tekur gjarnan myndir af náttúrufyrirbærum sem eru síðan framkallaðar þannig að yfir þær breiðist eins konar hula svo að myndin verður að einhverju öðru en því sem hún er tekin af. Þessi aðferð gerir það að verkum að birtan í myndunum virðist koma innan að, frá hlutunum sjálfum. Svipuð hugðar- efni eru einnig á ferðinni í málverkum Eggerts, þar sem strigaflöturinn er hulinn málningu sem síðan birtir eitthvað annað en hana sjálfa. Víxlverkan bókar og sýningar er auðsæ í verkum Eggerts. Töluvert er um það að fleiri en einn listamaður vinni að sömu bókinni. Ymist er þá að hver hefur sína opnu eins og í sýningarskrám eða þá að öll bókin er unnin í samvinnu tveggja eða fleiri listamanna. Nýjasta dæmið um slíka samvinnu er „sýningarskráin“ fyrir samsýningu nokkurra íslenskra listamanna í Basel í Sviss, Treffen im Gebirge (Stefnumót á fjöllum) 1984. Þátttakendur komu hver með sitt framlag, blaðsíður sem voru mismunandi ekki aðeins að myndefni heldur einnig að stærð og gerð og voru síðan bundnar inn. Framlög listamannanna réðu þannig stærð og gerð bókarinnar en ekki öfugt. En það er líka til að einstakir listamenn vinni beinlínis með 156
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.