Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 33
Ilmur af nafni rósarinnar einn og hinn sami í Sókratesi og Xanþippu kallast hluthyggja (realism), en málamiðlunarleiðin sem telur hið altæka búa í hugsuninni kallast hughyggja (conceptualism). Ef skyggnst er í verk þeirra Abelards og Ockhams og annarra þátttakenda rökræðunnar, gæti við fyrstu sýn virst sem hér sé einungis um afmarkaðar, tæknilegar spurningar að ræða, sem svörin við þeim skipti álíka miklu máli fyrir afganginn af veröldinni og svarið við því hvort orðin „sem“ og „er“ séu í raun og veru fornöfn. Svo er þó ekki, og málið horfði ekki heldur þannig við þátttakendum í rökræðunni. Nafnhyggja Ockhams er hluti af heimspekilegri kenningu um veröldina sem er einhver sú heilsteyptasta sem um getur. Þessi heimspeki er lokapunkturinn í skólaspeki miðalda, sem ekki bar frjóan ávöxt eftir daga Ockhams. Skólaspeki miðalda var tilraun til að setja fram heilsteypta veraldarsýn. Efniviður hennar var næsta margbrotinn: staðhæfingar Biblíunnar og kristin trú eins og hún var túlkuð af kirkjufeðr- unum, einkum heilögum Agústínusi; ennfremur guðfræði mótuð af platónskum og nýplatónskum viðhorfum sem hámiðaldamenn tóku í arf frá kirkjufeðrunum og kristnum heimspekingum fornaldar og ármiðalda eða fengu að láni hjá heiðingjum, annaðhvort Grikkjunum sjálfum eða arabísk- um heimspekingum; og síðast en ekki síst kenningar Aristótelesar. Þessi efniviður hafði blandast á ýmsa lund þegar hann kom í hendur skólaspek- inganna á hámiðöldum. Til dæmis var nýplatónisminn, sem var voldug hreyfing á síðasta hluta fornaldar, þegar í öndverðu mótaður af hugmynd- um Aristótelesar auk hugmynda Platóns. Ekki bætti úr skák að framan af eignuðu skólaspekingar Aristótelesi ranglega tvö rit sem í raun voru eftir tvo helstu kenningasmiði nýplatónismans, hina svonefndu Gudfrœði Aristó- telesar sem reyndist vera eftir Plótínos (205?—270) og Orsakahókina (Liher de causis) sem reyndist vera eftir Próklos (410? —485). Vilhjálmur af Basker- ville segist hafa heyrt talað um að Orsakahókin sé í rauninni ekki eftir Aristóteles (68). Einnig verður að geta um Diónýsíus hinn rangnefnda sem var kristinn nýplatónisti undir mjög sterkum áhrifum hins rammheiðna Próklosar. Miðaldamenn töldu lengi vel, áreiðanlega ranglega, að hann væri einn og sami maðurinn og Diónýsíus Areopagíti sem nefndur er sem fylgismaður Páls postula í Postulasögunni 17.34. Meðal annars vegna þessa meinta sambands við sjálfan Pál áttu kenningar Diónýsíusar greiða leið að hug og hjarta lærdómsmanna kirkjunnar. Meira að segja Jorge, sem annars virðist lítt hrifinn af grískri heimspeki, vitnar til hans með velþóknun (442). Jorge er hins vegar eflaust ekki sjálfum ljóst, að trúarheimspekin sem hann aðhyllist er heiðinnar ættar. Framan af miðöldum var Aristóteles fremur lítt þekktur í Vestur-Evrópu. Til var latnesk þýðing Boetíusar á Riðlunum og Setningafrceðinni (De inter- 167
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.