Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 50
Gubbergur Bergsson
Brúðan
Brot úr dögum byltingarinnar í Portúgal árið 1975
10. júní.
Gömul kona týnir buddunni sinni
Eg sat í lestinni til Estoril og hún fylltist smám saman, enda er 10.
júní í dag, Dagur Portúgals, almenn hátíð og frí frá vinnu og reyndar
byltingunni líka, þjóðhátíð landsins og dagur Camoes skálds. Sólin
skein og fólk flykktist úr borginni út að ströndinni til að sleikja
sólskinið og baða sig i köldum sjónum. Eg sat einn á bekk og var að
lesa smásögur Machado de Assis (brasilísks skálds) og þá settist hjá
mér eldri kona með handtösku. Lestin var ekki enn lögð af stað frá
Cais de Sodré. Félagi hennar, gömul kona, kom til hennar og bað
hana að geyma fyrir sig plastpoka í töskunni. Með því að ekki var
lengur sæti fyrir báðar settist sú eldri, sem var örlítið skeggjuð undir
hökunni, á bekk fjarri okkur. En nú fór hún aftar í lestina til að gæta
að sætum fyrir báðar. Meðan það gerðist höfðu hjón með börn fyllt
sæti hennar, með talsverðum troðningi, og þegar gamla konan kom
aftur hafði hún ekki fundið sæti, sætið hafði verið tekið frá henni, og
í þokkabót hafði hún týnt buddunni sinni. I fyrstu fór hún til
vinkonu sinnar og spurði hvort hún geymdi budduna, svo var ekki,
og þá fór hún að fyrra sæti sínu og spurði fólkið eftir buddunni.
Enginn hafði fundið hana. Nú fóru allir að leita eða svipast um og
þykjast leita, og hjónin sögðu að ef hún hefði týnt buddunni í sætinu
þá hefðu þau fundið hana og ekki sest, en ef hún ætlaði að nota tapið
til að komast í sætið fengi hún það ekki.
Við vitum ekki hvort þú hefur setið hér, sagði maðurinn og konan
hans kvaðst þekkja þvílík brögð, hún fengi ekki sætið.
Þessu fylgdi talsverður kveðandi um kerlingar sem væru með hvers
kyns brögð í lestinni til Estoril. „Eins og þú sjáir ekki að ég sit undir
tveimur börnum,“ sagði konan.
X
184