Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Blaðsíða 69
Julian Meldon D’Arcy
George Mackay Brown
og norrœnar fornbókmenntir
Skoska skáldið og rithöfundurinn George Mackay Brown fæddist 17.
október árið 1921 í smábænum Stromness á Orkneyjum, yngstur í hópi sex
systkina. Foreldrar hans voru John Brown, póstmaðurinn í þorpinu, og
Mharie Sheena Mackay, sem var ein af níu börnum hjáleigubónda og
sjómanns og talaði keltnesku að móðurmáli.
A árunum 1926 til 1940 stundaði Mackay Brown nám í Stromness
Academy og þar komu rithöfundarhæfileikar hans fyrst í ljós. En árið 1941
veiktist hann af berklum og tók það hann marga mánuði að ná sér af þeim.
Þetta leiddi til þess að hann gat ekki stundað erfiðisvinnu og varð stundum
upp á almannatryggingakerfið kominn.
Arið 1951 hóf hann nám við Newbattle Adult Education College í
Dalkeith skammt frá Edinborg, en skólameistarinn þar, Edwin Muir, sem
var vel þekkt og viðurkennt skáld, hvatti hann mjög til skrifta. Fyrsta
ljóðabók Mackays Brown, The Storm, var gefin út árið 1954 með formála
eftir Edwin Muir. Eftir annað berklakast hélt Mackay Brown áfram námi
sínu til BA prófs í enskum bókmenntum við Háskólann í Edinborg (1956—
1960) og stundaði síðan cand. mag. nám (1960—1962) með ljóðagerð
skáldsins Gerards Manley Hopkins sem sérgrein. Að frátöldum námsárun-
um í Edinborg og Irlandsferð hans árið 1968 hefur Mackay Brown eytt
öllum sínum ævidögum á Orkneyjum. Frá því fyrsta bók hans kom út árið
1954 hefur hann sent frá sér nokkrar ljóðabækur, sex smásagnasöfn, þrjár
barnabækur, þrjú greinasöfn, útvarpsleikrit, tvær bækur um Orkneyjar og
þrjár skáldsögur. Hann er þekktasti og afkastamesti rithöfundur Orkney-
inga nú um stundir. Fjölhæfni hans sést best á því hve jafnvígur hann er á
hin ýmsu skáldskaparform. Hvort heldur hann skrifar ljóð, leikrit eða sögur
þá hefur hann mjög sérstæðan stíl sem felst í blekkjandi einföldu en
nákvæmu orðavali með goðsögulegum og táknrænum undirtóni. Efnivið
sinn sækir hann að mestu í líf óbreyttra bænda og sjómanna á Orkneyjum,
bæði í fortíð og nútíð. Lífi þeirra ljær Mackay Brown oft nokkurs konar
dulræna og trúarlega fegurð en þeim áhrifum veldur greinilega hin djúpa
sannfæring hans í kristinni trú, einkum rómversk-kaþólskri.
203