Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 18

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 18
Tímarit Máls og menningar Dagný segir að bókmenntaverkið og túlkunaraðferðin eigi að mætast jafn- réttháar, þannig að þær varpi ljósi hver á aðra. Gott dæmi þess sér hún í grein Helgu Kress um Tímaþjófinn (í TMM l.h.1988), en það finnst mér hróplegt, því Helga rekur þar bara kenningar Júlíu Kristevu um hvernig kveneðlið birtist í bókmenntum og öðru, síðan tínir hún saman staði í skáldsögunni sem gætu átt við þetta, en gengur ekki út frá neinni heildarmynd af skáldsögunni. En hvernig tekst Dagnýju sjálfri til með þetta? Mér sýnist túlkunin hafa helsti mikið sjálfstæði gagnvart skáldsögunni. Eg er alveg sammála Dagnýju um að það sé slæmt ef „túlkunarfræði hefur engan sjálfsskilning". En gerist það ekki helst ef aðferðin sést ekki utanfrá, af því að túlkandinn beitir aðeins einni að- ferð? Það þykir mér einmitt sýna sig í grein Dagnýjar. Hún tekur fram að hún sé einungis að skoða tvo þræði í flóknum vef, ást og óhugnað í Gerplu. Innan þess ramma spinnur hún eftir hugmyndum sálfræðinga athyglisverðar samflétt- aðar kenningar, svo sem að móðurleit einkenni ástir Þormóðs, föðurleit valda- fíkn Olafs digra, en kvenfælni Þorgeirs Hávarssonar stafi af því að hann sé of háður móður sinni. Sameiginlegur sé þessum körlum ótti við „hið kvenlega". Og þá erum við komin á kunnuglegar slóðir, að kenningunni um að karlmenn séu almennt bæklaðir tilfinningalega. En fyrst það á að sýna sig í sögunni, þætti mér ástæða til að skoða samkenni kvenpersónanna. Það er að mínu mati öfga- full skrípamynd eftir tilsvari Guðrúnar Osvífursdóttur; „Þeim var eg verst er eg unni mest“, allar vilja þær senda þann biðil sem þær unna minna til að drepa hinn sem þær unna meir. Er þetta ekki svipað hetjuhugsjón karlanna? Mér sýn- ist Þorgeir fyrst og fremst skoplegur fulltrúi hennar, einkum sem andstæða við raunverulegt framferði víkinganna. Dagný nefnir þessa skoðun en finnst hún greinilega of þröng. Hér, og á öðrum stað (bls. 315) vísar hún til „skoðana fræðimanna", en í stað svo almennra orða væri betra að hafa beina tilvísun, svo að lesendur geti kynnt sér rök þeirra. Annars spinnur Dagný kenningaþráð sinn lítt trufluð af öðrum skoðunum. Það er gott að fá svo innblásna, hugvit- samlega túlkun. En það vantar þann herslumun til að þessar kenningar verði sannfærandi, að rökstutt sé hversvegna þeim beri að trúa fremur en öðrum. Mér sýnist ekki standast að sálgreina bókmenntapersónur, nema fjalla áður um þær sem kerfi mótsetninga og hliðstæðna. Skýringin á hegðun persónunnar B liggur oftast í samspili hennar við persónuna A í sömu sögu, o.s.frv., það er augljóst að eiginleikar Þorgeirs, Þormóðs og Ólafs konungs mótast að verulegu leyti af hlutverkaskiptingu þeirra, sama gildir um konurnar. Kenning Dagnýjar leiðir hana ennfremur til að segja um innrás Olafs Haraldssonar í Noreg: Boðskapur konungsins er bæði einfaldur og flókinn; öll uppbygging skal eyðilögð, öllu lífi útrýmt og hann gengur enn lengra, hann leggur til atlögu gegn sjálfu lífslögmálinu, móðurjörðinni, líkama frummóðurinnar sem skal brenndur í eldi. 8
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.