Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 61

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 61
Sagan og tómib gefin, engar fastar viðmiðanir, engar skoðanir öðrum réttmætari. Blasir þá ekki happa- og glappaaðferðin aftur við? A ekki hver og einn að velja þau gildi og þau sjónarmið sem honum henta? Kannski hentistefna sé lausnar- orðið? Eigi að vera vit í hentistefnu verður að vera hægt að miða við til- tekna hagsmuni eða verðmæti. Og þau verðmæti ættum við sjálf að geta valið. En hvernig veljum við þau? Nú er freistandi að ræða einstök dæmi á borð við þau sem ég hafði eftir Gunnari Karlssyni um mikilvægi þjóðfélagsverkefna. Gunnar nefndi dreif- ingu lífsgæða og misskiptingu auðs í heiminum. Hér er vissulega efni sem snertir hagsmuni alls þorra manna og flestir láta sig nokkru varða. En vandinn er ekki nema að hálfu leystur með því að benda á efnið. Hin hlið málsins lýtur að efnistökunum og þar með skoðunum okkar á dreifingu lífsgæðanna og skiptingu auðsins. Og hér er í húfi gildi sem oft hefur verið haldið hátt á lofti: réttlæti. I ljósi þess er sagan fyrst og fremst saga ranglætis þar sem fámennur hópur ríkismanna hefur hagnast á kostnað alþýðunnar og kúgað hana á marga vegu, ekki síst með því að telja henni trú um að ríkið standi vörð um hagsmuni hennar, en sé ekki tæki ráðandi afla til að skara eld að eigin köku. Þessi saga hefur ekki aðeins gerst heldur er að gerast fyrir augunum á okkur. Allir eru sagðir hagnast á aðgerðum stjórnvalda til að ná niður verðbólgunni, þó að aðgerðirnar miði allar að því að styrkja hagkerfi sem tryggir áfram misskiptingu auðsins og viðheldur þar með ranglætinu. Rök fyrir þessari söguskoðun má bæði sækja til marxisma og frjáls- hyggju, en skoðunin brýtur í bága við það sem íslensk stjórnvöld og senni- lega þorri almennings trúir og vill trúa um ríkið. Alþýða manna vill trúa því að ríkið sé öflugasta tæki okkar til að berjast gegn ranglætinu og fram- fylgja réttlætinu, meðal annars með því að skipta hinni svonefndu „þjóðar- köku“ á sem sanngjarnastan hátt. Og ýmis rök má færa fyrir þessari skoð- un engu síður en hinni fyrrnefndu. Þetta dæmi úr nútíðinni skiptir sköpum fyrir skilning okkar á sögunni og þar með á því hvernig við kennum sögu vestrænna ríkja og samskipti þeirra við aðrar þjóðir heimsins. Höfuðatriðið er afstaðan til réttlætisins og með dæminu lentum við því samstundis á bólakafi í umræðu þar sem kjarni málsins er gildismat og það sem kallast í daglegu tali „pólitík“. Þetta dæmi er að mínu viti dæmigert. Öll umfjöllun um söguleg efni ræðst af viðhorf- um manna til eigin samtíma. Og öll söguleg efni - hversu fjarlæg eða nálæg sem þau eru í tíma og rúmi - hafa ævinlega siðferðilega og pólitíska skír- skotun til samtímans. Það sem úrslitum ræður um þessa gagnkvæmu vísun nútíðarinnar til sögunnar og sögunnar til nútíðarinnar er afstaða okkar til þeirra gilda eða hagsmuna sem við teljum vera í húfi. Veljum við sjálf þessi gildi eða hagsmuni? Samkvæmt tómhyggjunni er 51
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.