Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Page 9

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Page 9
á auga enda skalf jörð um nóttina en hún svaf vært í aftursætinu. Það lýsir okkur báðum vel, öræfabarninu og borgarstráknum. Hanna og Matthías eiga tvo syni sem heita nöfnum feðra þeirra, Haraldur og Ingólfur. Sósíalt fyrirbrigði Nokkuð kvíðvænlegt var að vinna viðtal við mann sem kannski er ennþá þekktari fyrir viðtöl sín en önnur verk. Þegar hann sá litla upptökutækið, ómissandi gleymnum blaðamönnum í hraða nútímans, sagði hann í óspurð- um fréttum að hann hefði aldrei notað slíkt tæki. Öll viðtöl sín hefði hann handskrifað, og aldrei skrifað þau sjaldnar en þrisvar. Víst er að eftirfarandi samtal hefði orðið allmiklu styttra ef þau vinnubrögð hefðu verið notuð. Við hittumst þrisvar heima hjá spyrli og töluðum saman í þrjá klukkutíma í hvert skipti. Á fyrsta fundi drakk ritstjórinn svo mikið kaffi að stór hitakanna var í skyndi keypt á heimilið. Á næsta fundi þáði hann aðeins einn bolla, svo að fjárfestingin varð vafasöm; en á lokafundinum kom nýja kannan sem betur fór að góðum notum. Og það skorti ekki umræðuefnin. „Mér fínnst að þú opnir poka og fiðrið fer bara út um allt!“ sagði hann einu sinni, en í rauninni tókst prýðilega að halda sig við ljóðagerðina og láta ljóðabækur Matthíasar ráða ferðinni. En með hugann við erfitt val sem von Humboldt-styrkþeginn hlýtur að hafa staðið frammi fyrir þegar kallið kom að heiman spurði ég fyrst: Hefurðu séð eftir þessu vali? „Ég held ekki að það hefði orðið mér til góðs að lifa einskonar klausturlífi í fámennum hóp. Ég hef í mér svo sterka tilhneigingu til að loka mig af og vera sjálfum mér nægur. Blaðamennskan gerði það að verkum að ég varð sósíalt fyrirbrigði og fékk alls konar strauma inn í mig. Bæði varð ég farvegur fyrir þessa strauma og gat fyllt geyminn af áhrifunum. Innan við andlega klausturveggi hefði ég einangrast og týnt tengslum við þjóðfélagið. Það var uppörvandi að taka við svona starfi, og ég hef grætt á því á mjög margan hátt. En því er ekki að leyna að stundum hefur það farið í taugarnar á mér og stundum hef ég fengið svo sterkt ofnæmi fyrir umhverfi mínu að mér hefur liðið illa. Og það kom fyrir að ég þurfti að taka á öllu mínu til þess að horfast í augu við þessa krefjandi samtíð og gífurlega þrýsting sem var á ritstjóra Morgunblaðsins öllum stundum. Úr þessu hef ég þurft að vinna, og ég held að það hafi passað mér betur en ef ég hefði orðið doktor í Grími Thomsen og lokast inni í slíkri veröld." Ég finn einstöku sinnum í Ijóðutn þínum fyrir fyrirlitningu skáldsins á ritstjóranum, — til dæmis segir í Hólmgönguljóðum: TMM 1996:3 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.