Tímarit Máls og menningar - 01.09.1996, Blaðsíða 98
Iielgi Ingólfsson
Anna Hathaway sextug, ein yfir
þvottabrettinu
Anna Hathaway! Aumingja Anna Hathaway! Eiginmaðurinn yfirgaf
þig til að sigra heiminn. Veslings hnípna Anna Hathaway! Farin að
eldast, hárið orðið grátt og það sem ekki er tekið í hnút á hvirflinum
klessist við andlitið, þar sem þú stendur við ána og þværð af krógun-
um. Annarra manna krógum, Anna, mundu það, annarra manna
krógum. Hrukkur á enni, sprungnar æðar í búlduleitu og veðurbörðu
andlitinu, hendurnar soðnar, handleggirnir beinaberir, líkaminn allur
smágerður og samanhnipraður. Þessir tötrar, sem þú klæðist núna,
kölluðust einu sinni kjóll, en það eru mörg ár síðan. Hvernig leistu út
þegar þið hittust fyrsta sinni? Varstu fögur eins og Júlía eða grimm og
kaldlynd eins og lafði Makbeð? Varstu úrræðagóð og kæn eins og
Rósalind eða barnaleg og auðtrúa eins og Miranda? Varstu ef til vill
allar þessar konur? Varstu ef til vill hin mikla og ódauðlega fyrirmynd
þeirra allra? Og liggur þá leið þín um síðir niður eftir fljótinu langa,
líkt og hinnar fögru Ófelíu, blómum hjúpuð, með andlitið fölt og
augun lukt? Hvaða fljót ætti það svo sem að vera? Avon? Þessi á, sem
þú þværð í á hverjum degi?
Þeir segja að honum hafi vegnað vel úti í hinum stóra heimi og sé
nú jafnvel farinn að semja leikrit fyrir sjálfan Jakob kóng. Ertu bitur
nú? Telur þú þig ekJd eiga rétt til að njóta agnarlítilla brota af virðingu
hans og auðlegð? Þú átt þó að heita eiginkonan. Og þú ólst honum
börn, gleymdu því ekki, þú ólst honum börn.
En það var endur fyrir löngu, árin fimmtán hundruð áttatíu og
eitthvað, ég man það ekki lengur svo nákvæmlega. Og hvernig endur-
galt hann þér það? Hljópst á brott frá öllu saman. Sér er nú hver
föðurleg umhyggjan. Hljópst á brott frá öllu saman.
En þú getur varla láð honum. Hann var ungur þá, vart nema
unglingur, og hafði ekki enn hleypt heimdraganum. Þú varst eldri og
reyndari, ekkja með eigið barn. Það er ekki hægt að áfellast hann fyrir
96
TMM 1996:3