Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Blaðsíða 49
Birna Bjarnadóttir
Hvers vegna er dauðinn
besta gjöfin, Kierkegaard?
Ef Johannes de silentio væri fæddur íslendingur (en hann á að hafa
stokkið fullskapaður út úr höfði einhvers Dana, vesalings maðurinn)
fengi hann ekki síffandi flugur í höfuðið. Þess vegna segi ég: Kæru
landar (eða þau ykkar sem hafa haldið nafni forfeðranna á lofti með
dugnaði og elju!). Stígið upp í jeppana ykkar, brunið upp á hálendið
þaðan sem þið getið horft yfir landið, gerið vélsleðana klára og rennið
ykkur eins lengi og þið hafið kraft og getu til (og munið að skilja eftir
ykkur spor), snarist síðan aftur undir stýri og látið þreytuna leka úr
ykkur á heimleiðinni með því að setja tónlistina úr Tarzan í tækið og
hringja þau símtöl sem geta ekki beðið. Það er bara eitt sem þið verðið
að hafa hugfast: Aldrei að láta úrelt tilvistarraus koma róti á stáltaugar
ykkar, þær sem eru orðnar söluvara á heimsmælikvarða með tilkomu
líffækninnar á íslandi. Ef þið stoppið í sjoppu á leiðinni og einhver fer
að gaspra um fórn Abrahams meðan þið bíðið eftir pulsunni, svarið
þá um hæl: Hefur þú ekki heyrt talað um sameiningu bankanna, um
hagræðinguna og hina einu sönnu lífsfílósófíu: skítt með andann? Ef
viðmælandinn hættir ekki rausinu og fer að blaðra um sígilda reynslu
hið innra, að fórnin í kristni varði ekki bara tilfinningar trúar og ástar
í lífi hvers og eins heldur sé hún viðvarandi vandamál sem þjónar ríkis
og kirkju ættu að horfast í augu við og tala um í stað þess að gefa sig
alla í karp um alltof dýran flutning á hreyfanlegum kömrum vegna
hátíðahalda á Þingvöllum sumarið 2000, þá er ekkert annað að gera
en að forða sér út í bíl, læsa hurðunum og þakka guði fyrir jafh traust-
an griðastað.
Manfreð Pálsson: „Þegar ný manngerð brunar fr am úr útdauðri dýra-
tegund“ í Höfgi, Tímariti hins íslenska menningarfélags, 2000.
Inngangsorð
Á í slandi er haldið upp á 1000 ára afmæli kristni og af því tilefni getur áhuga-
fólk um flutning á hreyfanlegum klósettum landa á milli spurt þjóna ríkis og
kirkju spjörunum úr. En hvert á áhugafólk um kristni að snúa sér?
TMM 2000:4
malogmenning.is
47