Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 57
myndað sameiginleg fræðslusvæði þar sem sameinast er um ákveðna þætti hinnar
kirkjulegu ffæðslu.
í prófastsdæmum (fræðslusvæðum) sé einkum boðið upp á ffæðslu eða námskeið fyrir
eftirfarandi hópa:
o ungt fólk (t.d. lífsleikni í ffamhaldsskólum)
o fullorðna
o starfsmannaþjálfun fyrir starfsfólk sóknanna
o kennara og starfsfólk í uppeldismálum í samvinnu við skólann
Starfsmannaþjálfun svo og námskeið/samstarf við starfsfólk í ffæðslu/uppeldismálum eru
í samvinnu við fræðslusvið Biskupsstofu.
Setja má skipan ffæðslumála Þjóðkirkjunnar upp á eftirfarandi hátt varðandi framkvæmd,
efnisgerð og starfsmannaþjálfun:
I. Framkvæmd - ábyrgð
Sóknin Prófastsdæmið Biskupsstofa Kirkjumiðstöðvar
Foreldrastarf X
Bamastarf X
Fermingarstarf X X X
Æskulýðsstarf X X X
Fræðsla X X X X
fullorðinna
II. Efhisgerð - námsefni
Sóknin Prófastsdæmið Biskupsstofa Aðrir
Foreldrastarf X X
Bamastarf X X
Fermingarstarf X X
Æskulýðsstarf X X
Fræðsla fullorðinna X X
III. Starfsmannaþjálfun
Sóknin Prófastsdæmið Biskupsstofa Kirkjumiðstöðvar
Foreldrastarf X X X
Bamastarf X X X
Fermingarstarf X X X
Æskulýðsstarf X X X
Fræðsla X X X
fullorðinna
Kirkjumiðstöðvar - fræðslufulltrúar
Nú þegar eru á nokkrum stöðum á landinu starfandi kirkjumiðstöðvar, fræðslu- og
kyrrðarsetur (Við Eiðavatn á Austurlandi, Vestmannsvatni í Aðaldal, Löngumýri í
Skagafirði, Holti í Önundarfirði, auk Skálholts og Hóla). Skal nýta þau eins og kostur er
til að efla enn frekar fræðslustarf Þjóðkirkjunnar, einkum innan prófastsdæmanna.
Aðstæður á hverju svæði, fjármunir, starfsfólk, svo og eftirspurn, hljóta að ráða miklu
enda verður starf slíkra setra að mestu að standa undir sér eða vera fjármagnað af
heimamönnum. Á það skal lögð áhersla að starfið komi á undan starfsaðstöðunni en ekki
55