Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 72
Til að vel megi takast þarf innsýn i guðfræði - störf kirkjunnar og samstarfsvilja til
þeirra sem starfa með öldruðum á heimilum þeirra.
Einnig er mikilvægt að starfsmaður myndi gott og náið samband við sjálfboðaliða
kirkjunnar, veiti þeim fræðslu, styrk og handleiðslu.
Þeir eru fulltrúar kirkjunnar á hverjum stað, sem kirkjunni ber að hlúa að.
Bent er á að til er yfirgripsmikið fræðslu- og kynningarefiii um vinaheimsóknir er fyrir
hendi en það hafa þau Guðrún Eggertsdóttir, Halldór Elías Guðmundsson og Ragnheiður
Sverrisdóttir djáknar tekið saman.
B. Vinafundir í kirkjunni
Starfshópur um öldrunarmál hefur lesið yfir bækling sem þær Halla Jónsdóttir og Sigrún
Gísladóttir tóku saman og nefnist “Við saman í kirkjunni”. Upp úr honum hafa að nokkru
neðangreindir punktar verið teknir saman.
Starfshópurinn leggur til að söfnuðir landsins geti boðið upp á samverur eldri borgara í
kirkjunni. Slíkar samverur skal kalla “Vinafundi í kirkjunni” og er heppileg stærð hóps að
hámarki 12 manns. Form þeirra byggist upp á 2-3 klst. samveru þar sem tekið er fyrir til
umræðu og skoðanaskipta ýmis málefni sem ætla má að veki áhuga hinna eldri. Efifin
sem til umræðu eru tekin eru á sviði mannlegs lífs, þau hafi helst skírskotun til eigin
reynslu þátttakenda. Hvert tema eða umræðuefni verður grundvöllur hverrar samræðu og
hvatt til að allir þátttakendur taki þátt í umræðu og skoðanaskiptum, gefi af sér og þiggi
það sem aðrir í hópnum vilja miðla. Þagnarskylda skal viðhöfð. Umræður skulu byggja á
reynslu og tilfmningum.
Markmiðið er að fá fólk til að taka þátt í umræðu, segja frá eigin reynslu og sögu, hlýða
á aðra segja ffá. Með slíkum ffásögnum og umræðum er hvatt til þess að fólk tali saman
sér og öðrum til uppbyggingar og fróðleiks, geyma endurminningar og einnig er hægt að
stuðla að græðandi samtölum þegar þátttakendum er trúað fyrir erfiðri reynslu.
Form vinafundanna er með þeim hætti að hópur hittist í kirkju, safhaðarheimili eða
öðrum heppilegum stað. Byrjað er á ritningarlestri og bæn. Síðan kynna þátttakendur sig
stuttlega. Gott er ef starfsmaður kirkju/prófastsdæmis leiði hverja stund og hafi örstutt (2-
4 mínútur) innlegg um efiiið sem tala á um. Hverri samveru er úthlutað einu affnörkuðu
efni..Starfsmaðurinn stýrir umræðum og gætir þess að þátttakendur fari lítt út fyrir efni
hverrar stundar. Kaffi og veitingar eru á borðum og neytt effir aðstæðum. Að endingu er
farið í kirkju og þar stutt helgistund.
Ætla má að vinafundir gætu verið 1-2 í mánuði eða effir aðstæðum. Umræður skal leitast
við að tengja Biblíu, bæn og helgihaldi.
Efni sem hugsa má að taka fyrir í hverri samveru gætu verið sem hér segir. Gott er að
koma með fleiri efni og safna í góðan sarp.
1. Vinátta
2. Einmanaleiki
3. Makamissir
4. Fjölskyldan mín
70