Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 73
5. Bemskuheimilið
6. Æskustöðvar mínar
7. Fólk sem er mér minnisstætt úr bemsku
8. Kirkjan mín (úr æsku)
9. Kirkjan mín (núna)
10 Leikir
11. Jólin
12 Sumarkoma
13. Hauststörf áður fyrr
14. Sorgin (hvemig var unnið úr henni fyrr)
15. Sorgin í lífi mínu
16. Bænin í lífi mínu
17. Fyrirgefning
18. Þátttaka í félagsstarfi
19. Þátttaka í menningar- og félagslífi
20. Minnisstæð manneskja
C. Kynslóðir saman
Starfshópurinn telur mikilvægt að kynslóðir mætist og að efla beri að kynslóðir tali
saman. Opin, virk og gefandi þjónusta felst í því að þeir sem lokið hafa starfsferli sínum,
öðlast reynslu og lífsþroska, fái tækifæri til að gefa þeim sem eftir koma (börnum og
æskulýð) innsýn í sögu sína og það líf sem það hefur lifað, svo sem uppruna, líf og störf.
Samræður í þessum anda hafa verið reyndar á nokkrum stöðum m.a. í félagsmiðstöðinni
Gerðubergi í Reykjavík og gefíð góða raun. Þar mætti taka fyrir eftirfarandi þætti.
1. Spila saman á spil. Hinir eldri gætu kennt unglingum gamla spilaleiki. Yfír spilum
skapast oft dýrmætur tími til samræðna.
2. Fá ffásagnargott fólk til að segja frá viðburðum, hátíðum og öðrum daglegum
atvikum úr þeirra eigin bemsku. Slíkt mætti gera í fermingarfræðslu og á fundum
æskulýðsfélaga.
3. Gefa unglingum tækifæri til að tjá þeirra hugsunarhátt og tíðaranda með leikþáttum,
ffásögum, tónlistarflutningi og þess háttar.
4. Gefa unglingum tækifæri til að kenna og aðstoða eldra fólk við að kynnast
tölvutækninni og hagnýta sér intemet, tölvupóst og fleira. Það mætti gera í samstarfi
við skólana sem flest eiga tölvuver.
5. Fá unglinga (fermingarárganga og félaga í æskulýðsstarfi) til að “eignast” ákveðin vin
úr hópi aldraðra og hvetji þann aldna til að koma til helgihalds kirkjunnar og bjóða
ffam aðstoð við að sækja viðkomandi ef aðstæður leyfa. Einnig að fá ungt fólk til að
aðstoða þá eldri innan veggja kirkjunnar þegar helgihald fer fram.
6. Semja form fyrir einfalt helgihald þar sem bæði ungir og aldnir taka þátt saman.
7. Efna til sameiginlegra starfa t.d. gróðursetninga á vorin, gönguferða um nágrennið þar
sem staðfrótt eldra fólk fræðir hina yngri um staðhætti og örnefni
Með kynslóðasamræðum gefist kostur á því að sameina það mikla starf sem unnið er í
kirkjum með bömum og öldruðum s.s. skírnar- og fermingarfræðslu, æskulýðsstarfi og
öldrunarstarfi kirkjunnar.
71