Gerðir kirkjuþings - 2004, Síða 31
veg. Fulltrúar ráðsins mættu á fund þingnefndarinnar til að skýra mál sitt. Tekið var
nokkurt tillit til umsagna Kirkjuráðs, en æskilegt hefði verið að kirkjan, sem stærsti
jarðareigandi landsins, að ffátöldu ríkinu, hefði fengið að taka meiri þátt í samningu
frumvarpanna. Þá hefði mátt taka meira tillit til athugasemda ráðsins vegna kirkjujarða.
Þá samþykkti Kirkjuráð eftirfarandi ályktun vegna frumvarps til laga um þjóðgarðinn á
Þingvöllum:
Kirkjuráð fagnar tillögum um stækkun þjóðgarðsins og friðlýsingu hans sem
helgistaðar allra íslendinga í ffamkomnu frumvarpi ríkisstjómarinnar til laga um
þjóðgarðinn á Þingvöllum. Kirkjuráð álítur að frumvarpið feli ekki í sér breytingu
á réttarstöðu Þingvalla sem prestsseturs skv. lögum nr. 62/1990 og sem staðfest
var með starfsreglum Kirkjuþings skv. lögum um stöðu, stjórn og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Kirkjuráð mótmælir því að í greinargerð með
frumvarpinu eru Þingvellir taldir með ríkisjörðum, enda liggur ekki fyrir formlegt
afsai á Þingvöllum og samkvæmt þinglýstum eignarheimildum er ótvírætt að
kirkjan fer með eignarhald að Þingvöllum.
Kirkjuráð minnir á að undanfarin tuttugu ár hafa staðið yfir samningaviðræður
ríkisins og Þjóðkirkjunnar um kirkjueignir og prestssetur og það sem þeim fylgir.
Með kirkjujarðasamkomulaginu 1997 varð sátt um kirkjujarðirnar. Það
samkomulag var staðfest með kirkjulögunum nr. 78/1997 og sérstökum samningi
um fjármál Þjóðkirkjunnar þar af leiðandi. Vegna sérstöðu prestssetranna og þess
sem þeim fylgir varð að fjalla sérstaklega um þau. Viðræðunefnd ríkis og kirkju
störfuðu frá.1997 til 2002 en niðurstaða náðist ekki. Þrátt fyrir óskir kirkjunnar
hefur ríkisvaldið ekki séð sér fært að halda viðræðum áfram en Kirkjuráð væntir
þess að samkomulag geti náðst sem fyrst.
Aðstöðuhús við kirkjur
Aukist hefur að aðstöðuhús séu reist við kirkjur og kirkjugarða. Þau eru til að skapa
geymsluaðstöðu svo sem fýrir áhöld kirkjugarðs, snyrtingu fyrir gesti og stundum
aðstöðu fyrir söfnuð og kór, svo og prest. Unnið hefur verið að samkomulagi við
Kirkjugarðasjóð um viðmið um skiptingu kostnaðar vegna þessara mála, milli sóknar,
kirkjugarðs, Jöfnunarsjóðs sókna og Kirkjugarðasjóðs. Mál þetta er ennþá í vinnslu.
Bygginga- og listanefnd
Bygginga- og listanefnd kom á fund Kirkjuráðs. Störf nefndarinnar og staða voru rædd
ítarlega. í ljósi meiri og betri undirbúnings vegna umsókna í Jöfnunarsjóð sókna verður
hlutverk nefndarinnar enn meira hvað varðar mat á framkvæmdaþörf sókna, áætlanagerð,
notagildi mannvirkis og fagurfræðilegum þáttum.
Handbókfyrir valnefndir
Gefin var út handbók fyrir valnefndir prestakalla sem framkvæmdastjóri Kirkjuráðs vann.
I handbókinni er farið yfir ferli þegar prestakall er auglýst eða staða prests í prestakalli og
hlutverk valnefnda í því sambandi. Enn fremur eru helstu réttarheimildir sem við eiga
birtar í handbókinni. Handbókin er send umsækjendum og valnefhdarmönnum í
prestaköllum þar sem val stendur fyrir dyrum og liggur bókin jafnframt frammi á
Biskupsstofu.
29