Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 80
9. mál.
Starfsreglur um Ieikmannastefnu
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Sigríður M. Jóhannsdóttir
1. gr.
Biskup íslands boðar til leikmannastefnu í samráði við leikmannaráð.
2. gr.
Leikmannastefna er vettvangur almennra skoðanaskipta um málefni leikmanna og
faglegur samráðsvettvangur aðila.
3. gr.
Leikmannastefna:
Fjallar um málefhi leikmanna. hlutverk og störf sókna og sóknamefnda, svo og um starf
kristilegra félagasamtaka og aðra þjónustu kirkjunnar við söfhuði landsins
Kemur sameiginlega fram fyrir hönd leikmanna, sókna og sóknarnefnda gagnvart
stjórnvöldum, stofnunum kirkjunnar, starfsmönnum hennar og samtökum þeirra svo og
öðrum aðilum eftir því, sem við á
Eflir þátttöku leikmanna í starfi kirkjunnar og kynni þeirra sín á milli.
4. gr.
Á leikmannastefnu eiga sæti með málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt tveir fulltrúar
leikmanna fyrir hvert prófastsdæmi, sem kjömir eru á héraðsfundum til fjögurra ára í
senn. Þó skulu prófastsdæmi með fleiri en 15 þús. íbúa eiga þrjá fulltrúa á
leikmannastefnu og prófastsdæmi með fleiri en 30 þús. íbúa eiga Qóra fulltrúa. Kjósa skal
varamann fyrir hvem fulltrúa.
5. gr.
Leikmannastefnu með málffelsi og tillögurétt sitja:
Biskup Islands eða fulltrúi hans
Forseti Kirkjuþings eða varaforseti
Leikmenn á Kirkjuþingi
Leikmenn í Kirkjuráði
Aðrir þeir sem Biskup Islands tilnefriir hverju sinni í samráði við leikmannaráð
Fulltrúi frá hverjum þeim samtökum og félögum sem starfa á landsvísu innan
Þjóðkirkjunnar.
6. gr.
Héraðsfundur getur ekki tilnefnt kjörinn kirkjuþingsmann eða kirkjuráðsmann sem
fulltrúa Ieikmanna í prófastsdæmi. Tilnefna má þó varamann á Kirkjuþingi eða í
Kirkjuráði, sem ekki á sæti á Kirkjuþingi, sem fulltrúa prófastsdæmis.
Ef tilnefndur fulltrúi leikmanna í prófastsdæmi er kjörinn á Kirkjuþing eða í Kirkjuráð
sem aðalmaður eða tekur sæti þar sem varamaður, eftir að hann hefur verið tilnefndur til
setu á leikmannastefnu, skal varamaður taka sæti hans. Kjósa skal nýjan aðalmann á
næsta héraðsfundi þar á eftir sem situr út kjörtímabilið.
78