Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 22
3. mál 2003. Stefna og starfsáherslur Þjóðkirkjunnar 2004 — 2010.
Unnið hefur verið að framkvæmd stefnunnar i samræmi við samþykkt Kirkjuþings 2003.
Þetta er veigamesta stefnumótun kirkjunnar sem samþykkt hefur verið og er því allt kapp
lagt á að framkvæmd hennar takist vel. Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri til að halda
verkefninu áffam. Nú þegar hafa verið haldnir nokkrar kynningarfundir og er áformað að
farið verði með þá um land allt. Bæklingur um guðsþjónustuna hefur verið gefinn út og í
undirbúningi er annar viðameiri er kynnir meginstefnuna. Mestu skiptir að sóknir og
stofnanir taki virkan þátt í verkefninu.
4. mál 2003. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipan sókna, prestakálla og
prófastsdæma
Starfsreglur þessar sem og aðrar hafa verið birtar í Stjómartíðindum.
5. mál 2003. Þingsályktun um símenntun.
Kirkjuþing 2003 samþykkti að fela Kirkjuráði að móta heildstæða stefnu í fræðslumálum
Þjóðkirkjunnar. Hluti þeirrar stefnu fjalli um grunnþjálfun, endur-og símenntun
starfsfólks Þjóðkirkjunnar.
Biskup íslands og Kirkjuráð hafa unnið að samningu stefnunnar og er hún lögð fram á
þessu þingi í samræmi við ályktunina. Þykir mega vísa til hennar í 5. máli þessa þings, en
ítarleg greinargerð fylgir tillögunni.
6. mál 2003. Þingsályktun um kœrleiksþjónustu Þjóðkirkjunnar við leik-og
grunnskólabörn
í starfshópi um mótun fræðslustefnu, sbr. 5. mál, svo og í starfshópi um kirkju og skóla
var talið eðlilegt að fella þetta verkefni undir kaflann um kirkju og skóla í
fræðslustefnunni þar sem segir (kafli 3 Kirkja og skóli, verkefni bls. 4 í tillögu):
■ Sóknir og stofnanir Þjóðkirkjunnar eigi samstarf við leikskóla/skóla um
heimsóknir og fræðslu svo og áfallahjálp.
í framhaldi af því að fræðslustefna tekur gildi verður ráðist í gerð ítarlegrar námsskrár þar
sem einstök verkefni verða skilgreind nánar. Þar verður verkefnið sem tillagan fjallaði
um og reynd hefur verið í Mosfellsbæ notað sem módel að hugsanlegu samstarfi kirkju
og skóla á þessu sviði. Eftir sem áður þarf í sérhverju tilviki að eiga um það samráð við
skólastjórnendur á leik- og grunnskólastigi, því það er undirstöðuatriði í því samstarfi að
það sé gert á forsendum skólastarfsins.
7. mál 2003. Tillaga að þingsályktun um kirkjudagatal
Kirkjudagatal þetta hefur verið gert og birt á vef kirkjunnar. Þar af leiðandi er ekki um
tekjur af því að ræða eins og gert var ráð fyrir í tillögunni. Hugað verður að því að gefa
almanakið út í hentugu broti.
8. mál 2003. Skýrsla samninganefndar Þjóðkirkjunnar um prestssetur
Kirkjuráð hefur unnið að þessu máli. Þrátt fyrir fyrirheit ríkisvaldsins hafa engar
umræður farið fram og því ekki fengin niðurstaða. Landbúnaðarráðuneytið hefur selt
prestssetur eða hluta úr prestssetrum þrátt fyrir að samningum sé ekki lokið og er þar um
algerlega óheimilar sölur að ræða að mati Kirkjuráðs. Kirkjuráð hefur mótmælt þessum
sölum harðlega. Þá hefur Kirkjuráð lýst kröfum til óbyggðanefndar vegna þess lands
prestssetursins Garða sem enn er óselt. í ljósi þeirra ráðherraskipta sem fóru fram þann
15. september sl., var ákveðið að fresta frekari samningaumleitunum uns tími gæfist til að
20