Glóðafeykir - 01.04.1989, Síða 12

Glóðafeykir - 01.04.1989, Síða 12
10 GLÓÐAFEYKIR kaupfélaganna og Sambandsins undanfarið. Þróun efnahagsmála hefur verið óhagstæð. Mikil breyting hefur orðið í landbúnaði, hár fjármagnskostnaður hefur lagst þungt á allan rekstur. Þá hefur það valdið vonbrigðum, hve mörg fyrirtæki samvinnumanna í sjávarútvegi hafa lent í miklum erfiðleikum. Bundnar voru miklar vonir við þessi fyrirtæki, bæði hvað varðar rekstrarafkomu og einnig hvað varðar þátt þeirra í uppbyggingu atvinnulífsins vítt og breitt um landið. Þá má ekki gleyma hinum mikla rekstrarhalla Sambandsins. Hann hlýtur að vera samvinnumönnum mjög mikið áhyggjuefni. Það þolir reyndar litla bið að rekstri Sambandsins verði komið í rétt horf. Þetta er sagt ekki bara Sambandsins vegna heldur einnig vegna sjálfrar samvinnuhreyfingarinnar. Slíku lykilhlutverki gegnir Sambandið í samvinnuhreyfingunni. Það er ekki of sagt að Sambandið sé fjöregg hreyfingarinnar. En hvað er þá til bragðs að taka til að rétta við hlut samvinnuhreyfingarinnar? Ég held að engar einfaldar lausnir séu til lausnar vandanum enda staða hinna einstöku samvinnufélaga mjög misjöfn. Það liggur hins vegar alveg ljóst fyrir að mikillar aðlögunar er nú þörf innan samvinnuhreyfingarinnar, aðlögunar að síbreytilegri þjóðfélagsþróun. Nýjar kröfur verður að gera um skilvirka stjórnun. Skipulag starfsgreina verður að aðlaga hinum breytta markaði. Aðlögunin er margþætt og hún verður að vera markviss, gerð eftir vel undirbúnum áætlunum í hverju kaupfélagi, samstarfsfyrirtækjum þeirra og einnig og ekki síður í Sambandinu og dótturfyrirtækjum þess. Taka verður fjármagnsuppbyggingu samvinnufélaganna til gagngerrar skoðunar með það fyrir augum að opna fyrir innstreymi áhættufjármagns inn í kaupfélögin. Slíkt gæti gengt tvöföldu hlutverki; hjálpað til að efla eiginfjárstöðu félaganna og þar með bæta lausafjárstöðuna og svo jafnframt að gefa félagsmönnum kost á nýjum valkosti ávöxtunar á sparifé. Þá kæmi þriðja atriðið líka inn í myndina. Innstreymi áhættufjármagns myndi veita aukið aðhald við stjórnun á rekstri félaganna. Beinast liggur við að gefin væru út samvinnustofnbréf sem gætu gengið kaupum og sölum. Bréfunum fylgdi enginn atkvæðisréttur. Ég tel það ekki neitt vandamál að finna heppilegt form fyrir samvinnustofnbréfin, þannig að þau röskuðu ekki grundvallarreglum samvinnufélaganna. En um leið og framkvæmd er aðlögun samvinnustarfsins að síbreytilegum þjóðfélagsháttum, verða samvinnumenn að gera sér
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.