Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 17

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 17
GLOÐAFEYKIR 15 Við afgreiðslu í Gránu. og fært út kvíarnar jafnt og þétt og verið í forystusveit fyrir framfara- og hagsmunamálum héraðsbúa. Ég man sem drengur að verslunin var í einni lítilli búð. Þar störfuðu tveir afgreiðslumenn, en sekkjavara var afgreidd í pakkhúsi. Tvær skrifstofukytrur voru suður af búðinni. Kaupfélagsstjórinn, Sigfús Jónsson, í annarri, en Guðmundur Sveinsson fulltrúi K.S. um áratugi í hinni. Þessir menn höfðu óhemju þjálfun í að leggja saman í huganum og á blaði. Þá þekktust skrifstofuvélar ekki í Skagafirði og þær sáust ekki á skrifstofum kaupfélagsins fyrr en um 1940. Þeir lögðu saman heilu blaðsíðurnar með ótrúlegum hraða og nákvæmni. Mér er minnisstætt hvernig Guðmundur Sveinsson hreinlega flaug áfram næstum því jafn hratt og að þar væri samlagningarvél að verki og það skakkaði heldur ekki svo miklu í útreikningum hans. Nú eru breyttir tímar. Kaupfélagið rekur verslunina í hinni nýju og glæsilegu Skagfirðingabúð, skrifstofurnar eru á hæðinni fyrir ofan búðina, vel búnar tækjum og tölvuvæddar samkvæmt ströngustu nútíma kröfum. Einnig er rekin byggingavöruverslun á Eyrinni, sláturhús, verkstæði og svo mætti áfram telja. Auk verslunarinnar hér á Sauðárkróki rekur K.S. útibú á Ketilási í Fljótum, á Hofsósi og í Varmahlíð. Þetta er mikil þróun. Frá lítilli verslun og tveim smáum

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.