Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 23

Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 23
GLOÐAFEYKIR 21 Magnús H. Sigurjónsson: Stiklur í 100 ár Samvinnuhreyfingin festir rætur á íslandi á síðari hluta 19. aldar. Hún er talin eiga upptök sín í Englandi og fyrsta kaupfélagið var stofnað 1844 af nokkrum fátækum vefurum í smábænum Rochdale, en sá bær var talinn einhver aumasta og óþrifalegasta bæjarholan meðal allra hinna fátæku iðnhverfa á þessum slóðum og þá er mikið sagt, því víða var fátækt eða öllu heldur örbirgð. Ur slíkum jarðvegi er talið að fyrsti samvinnugróðurinn hafi vaxið. Það er því varla tilviljun að samvinnuhreyfingin festir rætur í íslensku þjóðlífi einmitt á þeim árum þegar hin mesta óáran ríkti bæði hvað varðaði tíðarfar og verslunarmálin almennt. Fátækt landsmanna var slík að almenningur átti minna en ekki neitt. Hungurvofan var sífellt til staðar, ef eitthvað bar útaf og fólk háði endalausa baráttu við að hafa í sig og á. Við þessar aðstæður var Kaupfélag Skagfirðinga stofnað. Formlegur stofnfundur var haldinn þriðjudaginn 23. apríl 1889. Ólafur Briem alþingismaður á Álfgeirsvöllum boðaði til þessa stofnfundar með ýmsum deildarstjórum hins gamla pöntunarfélags Húnvetninga og Skagfirðinga, eins og segir í fundargerð. Auk Ólafs Briem eru skráðir fulltrúar 11 hreppa á stofnfundinum. Eru það allt hreppar í Skagafirði auk Bólstaðarhlíðarhrepps. Ólafur Briem ásamt Erlendi Pálmasyni í Tungunesi hafði áður staðið fyrir stofnun svonefnds Coghillsfélags í júní 1885. Því félagi vegnaði ekki vel og áfundi 4. des. 1888, hafa Skagfirðingar endanlega ákveðið að hætta viðskiptum við Coghill, en stofna í stað þess kaupfélag og snúa sér til Louis Zöllner, að hætti annarra félaga með svipuðu sniði. Á stofnfundi kaupfélagsins voru samþykktar, auk lagafrumvarps, reglur um vörupöntun í tíu greinum og fjársölu í tólf greinum, sem

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.