Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 40

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 40
38 GLÓÐAFEYKIR sumarið 1977, en ári síðar setti það upp útibú á Ketilási. Árið 1981,27. febrúar, var svo sameiningin formlega samþykkt á sameiginlegum stjórnarfundi félaganna. Utibú K.S. í Fljótum, sér Fljótamönnum fyrir algengustu dagvörum, auk þess að þjóna ferðamönnum, sem í síauknum mæli eiga leið um þessa fallegu sveit. Lokaorð Ekki er meiningin að gera öllum þáttum í starfsemi kaupfélagsins skil í þessum sundurlausu stiklum. Enda er margs ógetið. Má þar nefna fóðurblöndunarstöð og kaup á graskögglaverksmiðjunni í Vallhólmi og reksturs hennar. Þátttaka í ýmsum fyrirtækjum, svo sem Steinullarverksmiðjunni, Steypustöð Skagafjarðar og fleira mætti nefna. Flutningastarfsemi er stór þáttur í rekstrinum og er félagið einn af hluthöfum í Landflutningum h.f. í Reykjavík. Ekki hefur heldur verið getið þess fjárhagslega stuðnings sem veittur hefur verið ýmsum menningar- og framfaramálum í bæ og héraði. Þegar litið er yfir sögusviðið mun koma í ljós, að saga kaupfélagsins er svo samtvinnuð lífsbaráttu félagsmanna, að þar verður ekki skihð á milli. Afkoma kaupfélagsins á erfiðleikatímum endurspeglar kjör félagsfólksins. Það má segja, að kaupfélagið hafi verið sálin í samfélaginu. Hvort þetta á við í dag er erfitt að meta, en hitt er víst, að sá sem hefur stóra sál á léttara með að sigrast á mótlætinu. Tekið saman í febrúar 1989. Magnús H. Sigurjónsson.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.