Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1987, Síða 162

Skírnir - 01.04.1987, Síða 162
156 ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON SKIRNIR kýrnar á holtinu, sem þurfti að mjólka, skóna sína, sem þurfti að baeta. Hún hugsaði um móður sína, sem hún varð að hjálpa. Hún horfðist í augu við lífið, sem hún átti að lifa, og leit ekki undan. Það var hvorki tími til þess að syrgja né deyja. Eg vann úr mér versta sviðann. Eg vann svo, að mig verkjaði meir í handleggina en hjartað, að engri hugsun varð drepið í skarðið milli þreytunnar og svefnsins. Eg vann eins og ambátt, sem er rekin áfram með svipum. En eg var sjálf svipan ... Og eg hef legið rúmföst í hálft annað ár og enga von haft um að komast á fætur aftur. Þá ót eg ársal um rekkju mína, úr raunum og rímum, sorgum og sögum, sólskini og regni. Eg óf í hann glitþræði af fornum ástum.9 Heimsmaðurinn sem lifir of hratt fyrir tímann og ellina, sveitastelpan sem þurrkar af sér tárin eftir sorgina, horfist í augu við lífið og vinnur úr sér sviðann, - þessi tvö eru lifandi gervi marglyndis og einlyndis. Síkum samanburði við Fornar ástir er ekki ætlað að kasta rýrð á Einlyndi og marg- lyndi. Þvert á móti er mikill fengur að því, að þessir fyrirlestrar skuli loks hafa komist á prent. Þeir bæta að vísu engri nýrri vídd við þá mynd sem við höfum af fræðimanninum Sigurði Nordal. Hins vegar eru þeir vel til þess fallnir að skýra þessa mynd og dýpka, enda eru þeir minnisvarði um mikil- vægan áfanga í þroskasögu Sigurðar sem rithöfundar og fræðimanns. Það er rétt sem fram kemur í Inngangi Þorsteins Gylfasonar, að lestrarnir séu frumlegt verk og „frumleiki úreldist aldrei þótt hann geti misst marks af öðrum ástæðum“ (xxi). Þorsteinn bendir jafnframt á, að Einlyndi og marg- lyndi er ekki heimspekirit í þrengri skilningi, heldur fjallar það öðru fremur um sálarfræði, nánar tiltekið um þær hugmyndir, sem voru á döfinni í þeim fræðum um síðustu aldamót. Þorsteinn kýs að kalla þessa fræðigrein manneðlisfræði og í sjálfu sér virðist ekkert mæla á móti því. Hins vegar notar hann tækifærið til að gera lítið úr þeirri framvindu sem orðið hefur í svokallaðri persónuleikasálarfræði á undanförnum áratugum. Meðal þeirra verka sem fá fyrir ferðina í þeim lestri er hið fræga rit Ofríkismaðurinn („The Authoritarian personality"), þarsem er að finna rannsóknir fræði- manna á þeirri manngerð, sem ginnkeyptust var fyrir villimennsku nasism- ans. I því sambandi vitnar Þorsteinn til þeirra orða eins höfundanna, að af- sönnunum hafi rignt yfir ritið í þrjátíu ár „og rigni enn“ (xxv). Eg verð að játa, að mér virðist það segja fátt um kosti og lesti fræðirits af þessu tæi, þótt menn geri þráfaldlegar tilraunir til að hrekja það sem í því stendur. Eftir því sem ég fæ ráðið af skrifum erlendra fræðimanna um Ofríkismanninn sýnist mér flestir sammála um, að hvað svo sem finna megi að úrvinnslu þessara rannsókna í einstökum atriðum, þá hafi hér engu að síður verið um býsna merkilegar athuganir að ræða. Eg er þess fullviss, að hefðu þeir vinirnir Sig- urður Nordal og Þorsteinn Gylfason átt þess kost að rökræða um þetta efni, þá hefðu þeir áreiðanlega verið á öndverðum meiði. Svo enn sé horft til frumleikans, sem víða gætir í Einlyndi og marglyndi,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212
Síða 213
Síða 214
Síða 215
Síða 216

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.