Skírnir - 01.09.1997, Síða 31
SKÍRNIR
AUÐNULEYSISHLJÓMKVIÐAN
305
AA krefst þess að menn muni, geri sér grein fyrir áhrifum sínum
á sjálfa sig og aðra, og biðjist síðan afsökunar og bæti fyrir. Þú
verður að lagfæra það sem þú hefur sett úrskeiðis með drykkju
þinni; gjalda réttlátlega fyrir. Imyndum okkur Bandaríkin þar
sem þau vakna af einu drykkjumókinu og biðja Kambódíu,
Nicaragúa, Sioux-indíána, kyrrsetta Japana, eða alla á svörtum
listum, fyrirgefningar. Imyndaðu þér sjálfan þig ...
Æðruleysisbænin, sem beðin er á sérhverjum AA-fundi, er
hinn sanni þjóðsöngur auðnulausa ríkisins sem Gilgamesh
dreymdi um þegar samviska hans þreyttist á fólskuverkunum
gagnvart fólkinu í Urúk og tók að þrá hið sanna auðnuleysi
mannsins:
Guð, gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem égfæ ekki
breytt; kjark til að breyta því sem ég get breytt; og vit til að
greina þar á milli.
Engar springandi sprengjur af himninum þessum.
11. Lánleysiþjóðar: brot úr sögu íslands
Hvað getum við þá sagt til lofs Bardalsfólkinu, sem dó á hundrað
árum í Ameríku og misheppnaðist ömurlega samkvæmt svo til
öllum mælikvörðum sem menning okkar býður upp á? Að mínu
mati hefur hið falska tungutak valdsins og velgengninnar, og skil-
getin viðleitni þess til að loka augunum fyrir raunverulegri
mislukkan, sem skaðar aðra jafnt og okkur sjálf, séð til þess að við
eigum enga sanna tungu lengur (nema kannski ljóðið og sönginn)
sem lýst getur eða íhugað líf þeirra og þar með samlagað sögu
þeirra okkar eigin. Ef við göngumst ekki við því lánleysi, glötum
við minninu og sagan hættir að vera til með réttum hætti og að
koma okkur að gagni. Við ökum þúsund sinnum framhjá kirkju-
garðinum og fáum hvorki séð né munað nöfnin á leiðunum.
Bardalirnir voru hluti af innflytjendamenningu sem hafði náð
langt í auðnuleysinu. Þau voru Islendingar, og meðvituð um það,
og þótt ekkert af börnum Friðgeirs liti nokkurn tíma land for-
feðra sinna, þá sögðust þau vera „Vestur-íslendingar", og gátu
séð, í hvaða sjónvarpstæki sem var, að þau voru ekki alveg jafn
bandarísk og fólkið í auglýsingunum og sápuóperunum.