Skírnir - 01.09.1997, Síða 261
SKÍRNIR
FRÁSÖGNIN í VERKUM ERRÓS
535
Myndin Bakgrunnur Pollocks er eitt stórbrotnasta „ævisögu-
málverk“ listamannsins. Myndin sýnir fjölda þekktra málverka,
tvær andlitsmyndir af Pollock og riddaralið. Hún er þannig upp-
byggð eða samsett að Erró raðar á myndflötinn, sem er í raun eft-
irmynd af dripping^ eftir Pollock, eftirmyndum af þekktum verk-
um úr listasögunni. Sameiginlega mynda þau tvö plön, skáhallt
inn í myndrýmið. Þannig býr listamaðurinn til sjálft myndrýmið.
Þar má sjá verk eftir (frá hægri til vinstri): Efst: Marchel
Duchamp, Van Gogh, Munch. Önnur röð: Chagal, Paul Klee,
Juan Gris, Jawlensky, Max Ernst, Matisse. Þriðja röð: Innrétting
frá 1930, Picasso, Boccerini, Mondrian, Nolde, Severini, Braque.
Fjórða röð: Dalí, Picasso, Matisse, Kandinsky, Picasso. Neðst til
vinstri: Mondrian. Fyrir neðan þessar myndir málar Erró mynd
af þekktri ljósmynd af Pollock, þar sem listamaðurinn styður
vinstri hendi á enni sér. Við hliðina er önnur andlitsmynd í rauð-
um lit af Pollock, líkt og skuggi af þeirri fyrri. Neðst í forgrunni
myndarinnar er mynd, séð í gegnum gleiðlinsu, af skoska ridd-
araliðinu sem tók þátt í orrustunni gegn Napóleon við Waterloo.
Uppröðun riddaraliðsins og staða þess á myndfletinum eykur á
virkni rýmisins.
Við tökum eftir því að listamaðurinn áréttar við áhorfendur
að hér sé um að ræða myndir af myndum með því að mála inn á
myndina, í efra hornið til vinstri, hönd sem er að pinna niður eft-
irmynd af sjálfsmynd eftir Van Gogh, sem jafnframt er sögulega
upphafsmaður expressionismans.
Málverkin sem mynda umhverfi Pollocks tengjast flest
expressionismanum: Van Gogh, Munch og Beckmann í efstu röð.
Auk þess má sjá verk eftir nokkra af helstu listamönnum aldar-
innar sem ruddu málverkinu/listinni braut út úr hefðinni og voru
nauðsynlegur inngangur fyrir listsköpun Pollocks: Matisse,
Marcel Duchamp, Picasso, sem stendur fyrir margar liststefnur
þar á meðal súrrealisma, Mondrian og súrrealistinn Dalí. Inn í all-
ar þessar myndir hefur Erró bætt við myndmáli Pollocks, auk
þess sem hann teygir á myndunum með því að nota myndvarp-
ann á ská.
5 Dripping er þegar listamaðurinn skvettir eða hellir litnum á léreftið.