Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 32

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 32
Bjöm Magnússon sonur Guðs o.s.frv., hafi verið alþekkt áður í grísk-rómverska heiminum. En hið sérkennilega einkenni kristindómsins gagnvart öllum þessum samsteyputrúarbrögðum var það, að hann byggði á sögulegum grundvelli, og notaði þessi heiti um ákveðna, sögulega persónu. En það var þó ekki frá þessum trúarbrögðum samtíðar sinnar, sem hinn verðandi kristindómur var fyrir mestum áhrifum, heldur frá hinni grísku heimspeki. í kristfræðinni koma þau áhrif fram í logosar- kenningunni. Ekki þó svo að skilja, að kristnin hafi tekið upp óbreyttar hugsmíðar hinnar grísku logosarheimspeki, en þannig, að hún hafði áhrif á það form, sem kristfræðin mótaðist í. Svo er að sjá, sem fyrstu kristnu söfnuðirnir eftir daga postulanna, postullegu feðurnir, hafi hugsað sér Krist sem birtingu Guðs meðal mannanna, án þess að gera sér nánari grein fyrir, hver sá háttur birtingar hans væri (Naiver Modalismus). Það voru fyrst trúverjendurnir (apologetes), sem komu fram með skýra logoskenningu. Þeir telja Logos son Guðs, guðlegs eðlis, en þó aðgreindan frá föðurnum, fyrsta verk förðurins. Sem „logos spermatikos“ hefur hann verið með í öllu, sem fram hefur komið af sannri opinberun í heiminum. Hið mannlega hverfur þegar í skuggann. „Menn verða að hugsa sér Jesú sem Guð, 1) af því, að hann er sá af Guði upphafni drottinn og dómari, 2) af því, að hann hefur fært þekkinguna og lífið og leitt mennina út úr veldi illra anda, villu og synd, og mun leiða þá. Þannig er hann sóter, kyrios, theos, hemon, theos mou, dei filius ac deus, dominus ac deus, en ekki hó theos” (Harnack: Dogmengesch. bls. 43). Þessi stefna leiðir til öfgakenninga, sem gera að engu hina sögulegu persónu Jesú. Dóketisminn hélt því fram, að Kristur hefði aldrei verið í holdi, heldur hefði hann aðeins birst sem svipur. Einveldiskenningin (Monarcianar) hélt fram alveldi Guðs í starfi Krists. Hún greindist í tvennt. Ættleiðingarkenningin (adoptionismus) sér í Kristi mann búinn sérstökum guðlegum krafti (dynamis, dynamistar), sem sendur sé til framkvæmdar hjálpræðisverksins, og síðan hafinn upp til guðlegrar dýrðar. Háttkenningin (modalismus) telur Krist hafa verið aðeins einn hátt (modus) Guðs að birtast á jörðunni. Það hafi verið faðirinn sjálfur, sem þjáðist og dó í Kristi (patripassianismus). Þessar stefnur urðu allar að víkja fyrir logoskenningunni, sem studdist við upphaf Jóhannesarguðspjalls um holdtekju Logosar. En það er fyrst Alexandríuguðfræðin og Orígenes, sem setja hana í fast kerfi. Hann heldur fram eilífum getnaði Logosar. Logos er Guði undirgefmn, hann er sérstök vera (oúsía, substantia) og persóna (hypostasis). Hann er annar Guð (deuterostheos). Þannig gufar hið sögulega upp. í þessum kenningum Órígenesar kennir mótsagna, sem síðan verða undirrót hinna miklu kristfræðilegu deilna 4. aldarinnar, sem kenndar eru við Aríus. Aðalsetningar Aríusar, sem urðu upphaf þessarar deilu, voru þessar: 1) Logos er annars eðlis og ólíkur að öllu veru föðurins; 2) sonurinn hefur upphaf, en faðirinn er án upphafs; 3) það var, að hann var ekki, og áður en hann var getinn, var hann ekki. Hér verða ekki rakin einstök atriði 30
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.