Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 88

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 88
Bjöm Magnússon verkar. Það er nefnilega fjarri því, að byrjunin, frumkvæðið, sé hjá manninum. Það er guðlegi krafturinn, sem laðar, eins og óskynjanleg orka, og að nokkru leyti íbúandi í manninum sjálfum, og kallar fram iðrunina. Það er þessi sannleikur, sem felst í hinni gömlu kenningu um réttlætingu af náðinni einni saman (gratia sola). Þennan þátt í afstöðu Guðs til mannsins munum vér nú taka til athugunar. b) Náð í guðspjöllunum er ekki talað um náð Guðs með beinum orðum nema á örfáum stöðum (Lk. 2,40,52; 1,30; 4,22. Jóh. 1,14.16,17). En hugmyndin um hinn náðuga Guð er þar engu að síður, ekki síst í boðskap Jesú um himneska föðurinn, sem lætur sól sína renna upp yfir vonda og góða og rigna yfir réttláta og rangláta. Allar gjafir hans til mannanna eru af óverðskulduðum kærleika. í bréfunum er aftur á móti víða talað um náð Guðs, sérstaklega hjá Páli, og má segja, að náðin sé grunntónninn í allri kenningu hans um Guð. Fyrir náð er hann það sem hann er, og náð hans er honum nægileg (I. Kor. 15,10. Gal. 1,15; 2,9. II. Kor. 12,9). Það er náðin, sem kemur í staðinn fyrir lögmálið til réttlætingar manninum (Ró. 6,14; 11,6). Og náðin veitir einnig sérstakar gjafir, náðargjafir, sem hinum trúuðu hlotnast fyrir kraft andans (I. Kor. 12). Fyrir Páli táknar náðin hina frjálsu, óverðskulduðu elsku Guðs, sem veitir gjafir sínar, og þá sérstaklega gjöf réttlætingarinnar, án þess mennirnir eigi kröfu til þess, af einskærri gæsku. Þetta er sú merking, sem orðið hefur yfirleitt í Nýja testamentinu. En síðar létu menn sér ekki nægja þá einföldu skýringu. Það er þó ekki fyrr en í vestur-kristninni, að náðin verður mönnum sérstakt um- hugsunarefni. Tertullianus verður þar einna fyrstur, og leggur grund- völlinn að þeirri kenningu um náðina, sem síðar var ríkjandi lítið breytt. Hann leit á náðina sem innblástur (inspiratio) sérstakrar orku, sem næstum tók á sig efnislegt form í kenningu hans (vis divinae gratiae, náðar „substantia”). Þessi orka var síðan búandi í manninum, og varnaði honum frá að syndga (donum perseverantiae). Ágústínus hélt kenningu hans áfram, og hélt því fram, að náðin veitti ekki aðeins kraft til að gera hið góða, heldur einnig að vilja það. Hún væri ómótstæðilegt afl, sem Guð beitti til að framkvæma vilja sinn er hann fyrirhugaði suma til frelsunar, en annars væri mannkynið „massa perditionis”. En þessi kenning lenti í mótsögn við kenningu kirkjunnar um verðleika góðra verka, og voru gerðar margar tilraunir til að eyða því ósamræmi, með því að gera vilja mannsins að nokkru gildandi. Pelagius gekk þar lengst, er hann kenndi algjört frjálsræði viljans. Sú kenning gat ekki haldið velli, en Semipelagianisminn, sem hélt fram samstarfi náðar Guðs og vilja mannsins, varð lífsseigari, enda þótt hann fengi ekki fulla viðurkenningu kirkjunnar. Það er fyrst með siðbótinni, að nokkuð nálgast aftur hið upprunalega náðarhugtak Nýja testamentisins. Melanchton féll í Loci sínum frá 1521 alveg ffá kenningunni um náðina sem utanaðkomandi kraft, en leit á hana 86
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.