Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1994, Blaðsíða 43
MÚLAÞING
41
Auk þess var svo reist yfirbyggð fjárrétt við húsið, hún tók 600 fjár.
Seinna var svo húsið stækkað. Var það 200 fermetra bygging á tveim-
ur hæðum.
Húsið var svo tekið í notkun haustið 1950. Dagslátrun 600 dilkar.
Sláturhússtjóri var ráðinn Sveinn Sigurðsson, í stað Jakobs Benedikts-
sonar. Matsmaður var áfram Sigmar Jörgensson og vélamaður Ólafur
Antonsson Vopnafirði.
Yfirsmiður var Guðni Þórarinn Jónsson Vopnafirði.
Jóhannes Kristjánsson frá Akureyri lagði frystikerfi í húsið og mun
það vera í fullu gildi ennþá.
Kaupfélagsstjóri var Halldór Asgrímsson.
Sú nýjung var í þessu húsi, að í frystigeymslunum var allstór klefi. Þar
var komið fyrir 240 læstum hólfum til að geyma í matvæli og voru þau
leigð hreppsbúum til afnota. Hvert hólf var talið að tæki um 70 kg.
Þessari nýjung var afar vel tekið, enda ekki komnar frystikistur til
geymslu matvæla. Frystikistuöldin rann ekki upp fyrr en löngu seinna.
Þessi hólf eru flest eða öll enn í notkun.
Það var nánast tilviljun að þetta nýja hús var einmitt byggt á gamla
sláturvellinum, svo segja má að enn sé slátrað á sama staðnum sem forð-
um.
Enda þótt þetta þætti til að byrja með hið ágætasta hús, þá fór svo eftir
allmörg ár, að það þótti ekki fullnægja þeim kröfum sem gerðar voru til
sláturhúsa og því var það um nokkur ár rekið með undanþágu.
Þar kom svo 1990, að það var alfarið bannað að slátra í því.
Var nú “af æðri máttarvöldum,” ákveðið að flytja allt búfé Vopnfirð-
inga til slátrunar norður á Kópasker, rúmlega 200 km leið.
Ekki voru bændur í Vopnafirði allskostar ánægðir með þessa ráðstöf-
un, svo þeir brugðu á það ráð að stofna félag um slátrun búfjár. Var
byrjað á að kaupa sláturhúsið af kaupfélaginu, og mun félagið hafa feng-
ið það með fremur vægum kjörum. Þetta er tveggja hæða hús og er slátr-
að á efri hæðinni eins og fyrr segir.
Næst var svo hafist handa við að gjörbreyta efri hæðinni og var því
lokið fyrir sláturtíð og fékkst þá leyfi til að slátra í húsinu.
Árið eftir var svo tekið til við að breyta neðri hæðinni og jafnframt var
tekin í notkun viðbyggingin, sem áður hafði lítið verið notuð.
Að öllu þessu loknu var svo sláturhúsið talið fullnægja þeim kröfum
sem gerðar eru til slíkra húsa, hvað svo sem síðar verður.
Kaupfélagsstjóri og jafnframt framkvæmdarstjóri við verkið var Þórð-
ur Pálsson Refstað.