Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1994, Page 70
68
MÚLAÞING
sænskri af gerðinni Avance með snarvendiskiptingu eins og kallað var
þegar snúningi vélarinnar var breytt rangsælis eða réttsælis eftir því
hvort sigla skyldi áfram eða afturábak. Skipið var raflýst og með öllum
besta útbúnaði er þá tíðkaðist. Hánefsstaðamenn stigu mikið framfara-
spor með því að bæta Rán við útgerð sína á smærri vélbátum og árabát-
um. Rán var send á síldveiðar fyrir Norðurlandi fyrsta sumarið (1923),
sem hún var í eigu þeirra, og gekk sú vertíð vel. Veitt var með snurpinót.
Ekki fara sögur af því hver verkefni m/s Rán kann að hafa haft um
haustið eftir að síldveiðum lauk, en m.a. hefur sá tími og fyrstu vikumar
eftir áramótin farið í það að hreinsa og lagfæra skip og tæki fyrir vetrar-
vertíðina er hófst í febrúarmánuði og endaði svo hörmulega er skipið
fórst við Homafjarðarós laugardaginn 1. mars 1924, en áhöfnin 15
manns bjargaðist öll. Verður saga þessarar sjóferðar rifjuð upp hér á eft-
ir.
Svo merkilega vill til að einn skipverji á Rán í þessari hinstu för skips-
ins er enn á lífi á þessu herrans ári 1993. Sá heitir Guðlaugur Stefánsson
fyrrverandi sjómaður, vélstjóri og verslunarmaður. Guðlaugur er hátt á
níræðisaldri þótt það megi ekki greina þar sem maðurinn er vel á sig
kominn bæði andlega og líkamlega. Hann er stálgreindur maður og
margfróður. Ég minnist Guðlaugs frá Seyðisfirði er hann var ungur sjó-
maður og vélstjóri er naut mikillar virðingar sökum atgervis síns, og við
sem þá voram ungir dáðumst mjög að kröftum hans og vaskleik, man ég
dæmi um það. Guðlaugur flutti til Reykjavíkur árið 1937 og gerðist af-
greiðslumaður og bifreiðastjóri hjá Litlu bifreiðastöðinni. Einnig vann
hann nokkur ár sem afgreiðslumaður í verslunum. Þegar ég mörgum
árum síðar settist að í Reykjavík, þá átti ég ánægjuleg skipti við Guð-
laug, en hann var þá sölustjóri verslunarinnar Veggfóðrarans við Hverf-
isgötu í Reykjavík.
Guðlaugur er ættaður af Austurlandi og úr Ár-
nessýslu. Hann er fæddur að Bóndastöðum í
Hjaltastaðaþinghá árið 1905. Kona hans er Ó-
lafía Ágústa Jónsdóttir frá Holtaseli á Mýrum í
Austur-Skaftafellssýslu. Bróðir Guðlaugs var
Ásbjörn læknir. Guðlaugur er tengdur fjöl-
skyldu minni þannig að Elísabet tengdamóðir
Hermanns Vilhjálmssonar frá Hánefsstöðum
var móðursystir Guðlaugs. Það sem hér fer á
eftir er að verulegu leyti eftir frásögn Guðlaugs
Guðlaugur Stefánsson. Stefánssonar. Einnig er stuðst við frásögn úr