Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1994, Síða 97
MÚLAÞING
95
Jón “Geitir”
Jón Geitir var annaðhvort sonur Þuríðar Árnadóttur eða bróðir hennar
og þá sonur séra Árna á Hofi á Skagaströnd, sem að framan er getið. Jón
var góður bóndi í Geitavík í Borgarfirði, en ekki er kunn kona hans.
Hinsvegar þótti hann illskiptinn við menn og kenndur var hann við kukl.
Hann átti í útistöðum við Gísla “gamla” prest á Desjarmýri föður séra
Halldórs er Desjarmýrarannál reit og afa Hafnarbræðra, kraftjötna sem
þjóðsögur eru skráðar af.
Gísli prestur var heljarmenni að burðum og hann lék Jón Geiti oft
grátt og sló fram úr honum blóðið, því það var trú í þá daga að það þyrfti
að vekja galdramönnum blóð til þess að gera þá óskaðlega. Eins var það
með Sigurð Magnússon sterka í Njarðvík, annað heljarmenni, að hann
var harðleikinn við Jón og tróð honum inn í hrossskrokk sem orðinn var
úldinn, því hann hélt að Jón hefði drepið fyrir sér hestinn með göldrum
og gekk þannig nær lífi Jóns.
Loks kom svo að Jón taldi sér ekki vært í Borgarfirði og flutti norður
að Strandhöfn í Vopnafirði, en sá bær er ystur á norðurströnd Vopna-
fjarðar, og bjó hann þar til æviloka. Dóttir Jóns Geitis, ein barna hans
sem getið er, hét Elísabet, fædd um 1725, og bjó hún í Strandhöfn eftir
föður sinn. Hún átti þann mann er Jón hét Guðmundsson ókunnur að
ætt. Þau bjuggu þar besta búi við manntalið 1762, hann 46 ára en hún 37
ára. Jón bóndi Guðmundsson lést um 1781-2, því skipti á búi hans fóru
fram 15. júní 1782. 108 ríkisdalir komu til skipta. Meðal barna Elísabet-
ar og Jóns í Strandhöfn var Ingveldur fædd um 1766, sem giftist Grími
Jónssyni bónda í Leiðarhöfn Egilssonar. Jón Egilsson faðir Gríms hafði
búið í Leiðarhöfn og komið þangað 1767, talinn vestfirskur maður.
Hann hafði komið austur og verið á vegum sýslumanna, Þorsteins á
Víðivöllum og Péturs sonar hans á Ketilsstöðum á Völlum. Seinni kona
Jóns hét Björg Gunnlaugsdóttir og var hún móðir Gríms manns Ingveld-
ar. Þau Grímur og Ingveldur bjuggu fyrst nokkur ár í Strandhöfn, en
fluttu 1786 í Leiðarhöfn og bjuggu þar æ síðan. Grímur Jónsson dó
1789. Hann hafði verið góður bóndi og sjósóknari mikill, en dó fyrir
aldur fram. Ingveldur bjó lengi í Leiðarhöfn eftir dauða Gríms og giftisl
aftur 1791 matros Sören Richardson Juntel, en þau voru barnlaus. í
þriðja sinn giftist hún 1796 Ásmundi Péturssyni frá Kollaleiru í Reyðar-
firði. Hann var bróðir hefðarbændanna Jóns Péturssonar á Refsstað og
Björns Péturssonar á Hraunfelli. Þau voru líka bamlaus. Ingveldur í
Leiðarhöfn hefur verið álitskona mikil í sjón og skörungur að allri gerð.