Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1994, Blaðsíða 168
166
MÚLAÞING
Brimasamt er við Seley og gengur sjór mjög á land í aftökum, er þá
sem hún nötri og skjálfi.
Vegna legu eyjarinnar var hún kjörin verstöð og var svo frá ómunatíð.
Róðrar hófust þar um páska en lauk í ágúst eða september, eftir veður-
fari og afla. Lendingar eru slæmar í Seley, hvergi sand- eða malarfjara.
Lent var við klappir og þurfti ætíð að setja báta upp á grasbala milli
róðra ef ylgja var.
Byggð var aldrei í eynni utan verskálanna. Viti var byggður í Seley
árið 1956, en áður var þar hlaðin varða til leiðbeiningar sæförum, nefnd
“Bóndavarða”, tíu álnir ummáls og fjórar álnir á hæð.
Árin 1764-1773 segir að fluttar hafi verið út frá Austfjörðum 912
tunnur (136 pottar hver) á fyrri áratugnum, en 1189 tunnur (120 pottar
hver) á þeim síðari og er talið að megnið hafi verið hákarlalýsi frá út-
veginum í Seley.
Hinn 15. sept. 1781 segir í bréfi frá Jóni Sveinssyni, sýslumanni á
Eskifirði, að hákarlaveiði hafi verið góð um vorið í Seley, en fiskveiðar
gengið miður þar til fyrir miðjan júlí, en aflast vel eftir það. Fiskinum
fylgdi mikil síldarganga.
I bréfi frá 2. október 1783 segir Jón Sveinsson sýslumaður að fisk-
veiðar hafi brugðist austanlands í nær þrjátíu ár og menn hafi farið lesta-
ferðir suður á land til fiskkaupa.
I bréfi frá 1784 segir hann að fiskveiði hafi verið treg og fiskur haldið
sig uppsjávar. Hákarlaveiði í Seley var treg þetta sumar. 1785 var afla-
hæsti bátur í Seley með 12 hákarla.
Poltz formaður stundaði veiðar við Seley þetta sumar, en aflaði lítið
þrátt fyrir góða kunnáttu á sjó. (Eskja II. E.B.Sig.).
Ásmundur Helgason segir frá vertíð í Seley árið 1897. Hún hófst 16.
mars og stóð út júlí. Eftir veturnætur fluttu þeir í land, og var þá aflinn
orðinn 130 hákarlar, 292 flakandi lúður, 156 skötur og 50 skippund af
sölufiski. Telur hann þetta mesta afla á einn bát, en vertíðina jafnframt
þá lengstu.
Árið 1900 hófst vertíð í Seley þriðja dag páska. Hákarlsafli var góður
þetta vor, fiskur tregur framan af vori, en glæddist er á leið. Þessa vertíð
reru fjórir bátar frá Seley.
Seint í ágúst strandaði danska dragnótaskipið m/s “Danía” frá Fred-
rikstad í Seley. Strandið varð á föstudagskvöldi, í stórstraumi og norð-
austanstormur í aðsigi.
Á laugardagsmorgun kl. 04:00 fóru vermenn á stjá til þess að bjarga