Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1994, Page 180
178
MÚLAÞING
Þegar Ragnar kom í Markúsarsel, voru þeir að fara inn túnið inn að
Höfða, Jón, Albert og Sveinn. Ragnar drakk einn kaffibolla og flýtti sér
á eftir þeim inneftir. Hann kom jafnt hinum að snjóflóðinu. Þeir fóru
niður á Hofsá, þar sem snjódyngjan lá. Við nánari athugun sáu þeir ydda
á annan fótinn á Ingólfi og voru því fljótir að grafa frá honum. Annar
fóturinn stóð svo til beint upp, en hinn var krepptur, og eins hendumar,
svo hann gat ekki hreyft sig. Höfuðið vísaði niður og lá við ísinn á ánni.
Snjórinn hafði sigið. Hann var farinn að bráðna og Ingólfur að blotna.
Eins var með ísinn á ánni, hann var farinn að þiðna.
Ingólfur var orðinn kaldur og stirður og blautur um mitti og herðar.
Hann sá aðeins meðfram fætinum og gat gert sér grein fyrir því að
stjömubjart var.
Ragnar klæddi sig úr fötum, og þeir drifu Ingólf í þau þurr og heit, en
Ragnar fór í blautu fötin. Þeir höfðu hann á milli sín og gengu undir
honum á leiðinni úteftir.
Ferðin úteftir gekk ótrúlega vel. Þegar þeir komu út t Markúsarsel,
voru þeir Bjöm og Stefán að koma frá Múla. Ingólfur var strax háttaður
ofan í rúm og hlúð að honum eftir bestu getu.
Hann lá eina viku eftir hrakninginn í snjóflóðinu. Ingólfi varð ekki
meint af volkinu. Hann mun hafa verið í snjónum um 7 til 8 klukku-
stundir, og var komið nær miðnætti þegar í Markúsarsel var komið.
Ragnar var eina viku í Markúsarseli meðan Ingólfur var að jafna sig.
Við athugun kom í ljós, að ein ær og eitt lamb hafði lent í snjóflóðinu og
drepist.
Ingólfur var bóndi á Flugustöðum frá 1928 til dauðadags 2/3 1972 og
varð 77 ára gamall. Kona Ingólfs var Stefanía Stefánsdóttir frá Tungu-
hlíð. Þau eignuðust sjö börn og eru sex á lífi og mörg barnabörn. Stef-
anía lést 84 ára 2/3 1992.
Helstu heimildir:
Frásagnir Jóns Björnssonar og Jóns Sigfússonar Bragðavöllum.
Kennaratal.
Frásögn Ragnars Péturssonar.