Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Side 53
Kolanám í Jökulbotnum
„Jökulbotnarþessir eru upp afHoltastaðaeyrí í um 750-800 metra hœð. “ Mynd tekin inn Reyðarfjörð yfir
Eyrardal. Eyrarfjall íforgrunni, Kambfell fjœr og Jökulbotnar á milli. Ljósm.; SGÞ 2001.
merkisriti Eskju eftir Einar Braga Sigurðs-
son, en þar má sannarlega margan mætan
fróðleik finna. Björn G. Eiríksson tók þar
saman fáeina fróðleiksmola um Jón og fara
nokkrir þeirra hér á eftir:
„Jón Carl Fredrik Isaksson Amesen, s.s.
hann hét fullu nafni, var fæddur árið 1873
og lézt árið 1937. Jón mun trúlega hafa
verið Seyðfirðingur, því þaðan kom hann til
Eskifjarðar árið 1889, varð þar svo búðar-
þjónn og síðar verzlunarstjóri í Utkaupstað,
alla vega titlaður svo 1904. Árið 1920 var
hann svo orðinn forstjóri „Hinna sameinuðu
íslenzku verslana í Útkaupstað". Jón átti
sæti í skólanefnd Eskifjarðar 1910-1916 og
sá þá um efnisöflun í nýja skólann, titlaður
þá sem konsúll, og í hreppsnefnd mun hann
einnig hafa átt sæti“. Þannig var samantekt
Björns um Jón C. Arnesen úr Eskju Einars
Braga.
Ekki skal lopinn lengur teygður um mál
þetta, þó fýsilegt væri til frekari fróðleiks,
en alla vega ljóst að Jón Carl þessi hefur
haft býsna mikla drauma um námuvinnsl-
una, þegar litið er til fundargjörðar Jóns Sæ-
bergs, þó ekki yrði um svo stórtæka vinnslu
að ræða sem í huga var höfð. Er fróðlegt að
vita hvort menn hafa hér um frekari vitn-
eskju, því efnið er talsvert forvitnilegt, ekki
sízt með tilliti til hinna margræddu fyrir-
huguðu stóriðjuframkvæmda á Reyðarfirði,
en með nokkrum sanni má segja að kola-
námadraumar Jóns Carls hafi verið í nokkra
átt við stóriðju miðað við þann tíma sem þá
var. Landeigendur í Reyðarfirði hafa greini-
lega verið opnir vel fyrir þessum hug-
myndurn Jóns Carls og í engu viljað aftra
framkvæmd þessari.
Er svo mál að linni - að sinni.
51