Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Síða 82

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Síða 82
Múlaþing ingum og kannski myndatökum, þeir voru þama ábyggilega að njósna frekar en í vígahug því að vel gátu þeir verið búnir að sökkva varðskipinu ef þeim hefði fundist það tilvinnandi. Svo var þetta kannski ekki þýskur kafbátur heldur samherji? En það kom brátt í ljós að svo var ekki. Eg virti kafbátinn fyrir mér stundarkorn. Klukkan mun hafa verið um 10:30 þegar eg sá hann fyrst. Mér datt þá í hug að hlaupa inn í húsið og segja fólkinu frá því sem fyrir augu mín hafði borið, því sem enn var á fótum. Það fór þegar út og sá kafbátinn. Mér datt þá í hug að hringja inn á miðstöð Landsímans og segja frá kafbátnum og gerði eg það. Var þá strax haft sambandi við sýslumann Norður-Múlasýslu og bæjar- fógeta Seyðisfjarðarkaupstaðar, Hjálmar Vilhjálmsson, og honum tilkynnt um kaf- bátinn. Sýslumaðurinn hafði strax samband við herstjórnina og tilkynnti henni tíðindin. Annar maður, Eiríkur Vigfússon frá Sjávarborg, sá einnig kafbátinn um líkt leyti, þó líklega aðeins fyrr. Eiríkur var að koma út úr húsinu Dagsbrún, sem þá var á Þórarinsstaðaeyrunum, og var á leið heim til sín í Sjávarborg þegar hann veitti eftir- tekt skipi sem var ólfkt öllum þeim skipum sem hann hafði áður séð. En hann áttaði sig fljótlega á því að þetta mundi vera kafbátur. Nokkur ferð var á bátnum þegar Eiríkur sá hann. Var báturinn þá fremur grunnt undan Gullsteinseyrinni og hélt út með landinu. Þegar Eiríkur kom heim til sín símaði hann einnig inn á símstöðina og sagði frá ferðum kafbátsins. En það var nokkru seinna en eg tilkynnti um hann. Þessi frétt var einnig send herstjórninni. Þegar eg hafði ásamt öðru heimilisfólki á Þórarinsstöðum virt kafbátinn fyrir mér nokkra stund, eða á að giska 5 mínútur, tók eg eftir því að mennirnir sem voru á þilfarinu stukku allir að turninum og hurfu þar. Skömmu síðar hvarf kafbáturinn í djúpið með miklum hraða. Var lengi á eftir hvítur blettur á sjónum, líkt og froða, á þeim stað sem hann fór niður. Við fylgdumst svo vel með því hvort nokkuð meira væri að sjá til ferða kaf- bátsins en hann kom ekki aftur upp á yfir- borð sjávarins svo við sæjum. Hvíti froðu- bletturinn var lengi sjáanlegur og minnti á staðinn þann sem drekinn hvarf í djúpið. Það hefur líklega liðið um lA klukku- stund frá því að kafbáturinn hvarf þar til að skip kom brunandi út fjörðinn. Skammt utan við hliðið á kafbátagirðingunni féll fyrsta djúpsprengjan í sjóinn. Síðan hver af annarri með fremur stuttu millibili. Allir íbúar beggja vegna fjarðarins þutu á fætur þeir sem til náða voru gengnir. Hvert mannsbam fór út úr húsum sínum, enda þar ekki viðvært fyrir hristingi og spenningi í fólkinu sjálfu. Húsin léku á reiðiskjálfi. Hlutir köstuðust úr stað. Leirmunir brotn- uðu, féllu úr hillum og skápum, myndir af veggjum, speglar sömuleiðis og að minnsta kosti eitt útvarpstæki féll úr hillu og brotnaði. Skömmu eftir að djúpsprengjuskipið hóf aðgerðir sínar kom annað sprengjuskip og svo það þriðja. Fyrsta skipið hélt rakleiðis út fjörðinn. Það fór all nærri suðurströnd- inni. Hvað langt út í Seyðisfjarðarflóann það fór veit eg ekki. Alla vega fór það út úr firðinum. Næsta sprengjuskip fór aðeins norðar og það þriðja fór nyrst eða sem næst því miðfjarðar. Þegar það var að hverfa út fjörðinn, kom það fyrsta til baka og hélt allnærri girðingunni. Skipin geystust út og inn fjörðinn, sitt á hvað, og létu sprengj- urnar falla. Þannig gekk þetta í nokkra klukkutíma. Mesta sprengjuregnið var þó á tímanum frá kl. 11:30 til 12:30, svo dró heldur úr því en mjög margar sprengjur sprungu þó allt til kl. 3 um nóttina. Sein- 80
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.