Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2001, Síða 152
Múlaþing
Þráðarleggur með togþrœði, sjá nr. 2 á bls.147.
Myndað með leyfi Minjasafns Austurlands.
Vallanes og drukknuðu. Guðfinna og Jón
áttu soninn Odd (7020), sem var þá árs-
gamall. Eftir þetta fór Guðfinna frá Meðal-
nesi. I maí 1831 var hún bústýra Péturs
bróður síns á Hreiðarsstöðum en 16.
okt.óber um haustið giftist hún Bjarna
Bjarnasyni frá Krossi, bæði talin þá til
heimilis á Setbergi. Vorið 1832 fóru þau í
húsmennsku í Skógargerði en þar bjó
Sigfús bróðir Guðfinnu. Þar fæddist fyrsta
barn þeirra, sonurinn Jón. Oddur Jónsson
fylgdi móður sinni.
Vorið 1833 hófu þau búskap á Asseli í
Fram-Fellum. Þar var búið af og til og hafa
þau byggt upp bæjarhús á gömlum rústum
en ekki þurfti að byggja fjárhús, því þarna
voru beitarhús frá Asi. Beitiland er snoturt
og engjar dágóðar, einkum í Þúfublá. Son-
urinn Bjarni fæddist 7. mars 1834.
Vorið 1836 fluttust Bjarni og Guðfinna
að Sigurðargerði, sem var hjáleiga frá Asi,
hagsæl jörð og gott land í fjalli og heiði.
Bæjarhús hefur þurft að byggja upp, því
enginn hafði búið þar frá 1822. Beitarhús
voru uppistandandi. Engjar voru ekki eins
samfelldar og á Asseli. Þar fjölgaði á heim-
ilinu svo um munaði: Ingunn Margrét f. 4.
maí 1836, Einar 21. nóvember 1838,
Finnur 28. okt. 1839 og Helga 18. febrúar
1842. Voru börnin orðin sjö á heimilinu og
húsakostur að líkindum ekki rúmgóður.
Skeggjastaðir í Fellum eru stórglæsileg
jörð með mikinn heyskap í túnum og á
Teigum, sem eru víðlendir mýrarflákar
neðan bæja. Hefur það land að mestu verið
framræst nú og ræktað. Þau fluttust þangað
árið 1842. En landþröng hefur orðið í
högum og vetrarbeit kröpp. Þríbýli var
meirihluta búskapartíma þeirra auk þess
sem búið var í hjáleigunni Götu samtýnis
og samtímis.
Þeim fæddust tvíburatelpur 1846 en dóu
báðar sama ár. Yngsta bamið var Pétur
Metúsalem, f. 29. nóvember 1849. Var hann
10. barn Guðfinnu. Hún lést á Skeggja-
stöðum 14. janúar 1851 frá yngsta baminu
rúmlega ársgömlu. Oddur Jónsson fylgdi
ætíð móður sinni. Bjarni Magnússon var á
Krossi til 1843, fluttist þá til sonar síns á
Skeggjastöðum og lést þar 1847.
Bjarna Bjarnasyni hefur þótt beitar-
þröng fyrir búfé á Skeggjastöðum og
fjölskyldan var stór. Vorið eftir lát Guðfinnu
hafði hann ábúðarskipti við Einar (6373)
Jónsson í Kollsstaðagerði á Völlum og fór
þangað með böm sín. Oddur Jónsson hóf
búskap á Hreiðarsstöðum og bjó þar til
æviloka. Bjarni talaði hlýlega um stjúpson