Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Page 139
137
annars fram í því að fólk þarf að standa og falla
með sínum ákvörðunum eða það sinnir starfi
sem kannski fáir aðrir geta gengið inn í.
Næst verður skoðað gildi menntunar út frá
persónulegum og félagslegum þáttum (sjá 1.
mynd). Þessir þættir vísa til einkalífsins hér.
Tæplega helmingur viðmælenda (7) töldu að
menntun liefði skilað þeim bættu einkalífi.
Greina mátti þætti sem vísa til einkalífsins
þó viðmælendur flokkuðu þá sjálfir ekki sem
slíka. Hér er sjálfsöryggi talið til einkalífsins
þó margir viðmælendur tengdu það stöðu
á vinnumarkaði. í líkaninu (1. mynd) er
atvinnugrein og atvinnuástand ekki talið hafa
áhrif á persónulega og félagslega þætti. Þetta er
vegna þess að menntunin nýtist fólki í einkalífi
þó atvinnugreinin eða atvinnuástandið geri
það að verkum að menntunin nýtist ekki sem
skyldi í atvinnulífi.
Menntun er talin leiða til meira sjálfsöryggis
(12). Alda, einn viðmælanda, lýsti hvað hiin
teldi að fælist í auknu sjálfsöryggi. Bæði
má sjá á svari hennar að hún vitnar í hve
mikilvægt er að ljúka námi, hún hafi sannað
getu sína, hún talar einnig um að menntunin
hafi veitt henni þessa sérþekkingu og einnig
má sjá á svari hennar hvemig hún notar þá
þekkingu sem veitir henni bæði ómetanlega
ánægju, sigurtilfinningu sem um leið eflir
sjálfsöryggið:
... ég er búin að sanna það fyrir sjálfri mér og
öðrum að ég gat lært þetta ... ég náði öllum
þessum prófum og náði góðum einkunnum. Og ég
stóð alls ekki að baki yngri nemendum sem voru
þama ... Og sérstaklega að ég er með sérþekkingu
sem að ég get alveg talað um og mér finnst fólk
meta þegar ég er að segja þeim frá. Fólk er glatt
þegar ég get gefið því einhverjar hugmyndir og
einhver ráð og svoleiðis. Það gefur mér rosalega
mikið. Bæði nemendunum í skólanum sem koma
og eru kannski örvæntingarfullir ... Þegar maður
fer að skoða málin (hjá nemendunum) ... og þau
fara glöð út, þá er það alveg (stórkostleg upplifun).
Það er nefnilega margra þúsundkalla virði.
í sjálfsöryggi felst einnig að geta sagt „ég
er...“ og vísa síðan í ákveðið starfsheiti. Það
gerir fólk öruggara með sig og því virðist
líða betur að hafa þetta ákveðna hlutverk að
vísa í. Þannig hefur aukið sjálfsöryggi einnig
áhrif á einkalífið því fólk fær þessa sömu
viðurkenningu fyrir að hafa lokið menntun
hjá fjölskyldunni sem og á starfsvettvangi.
Hins vegar virðist að aukið sjálfsöryggi hafi
þýðingu á fleiri vegu hjá konum. Þær telja
sig öruggari með sig á vinnumarkaði hvað
starfsval snertir, þær eru öruggari í samskiptum
sínum við skólana vegna uppeldis barna sinna
og geta frekar staðið fyrir máli sfnu. Þetta er í
samræmi við niðurstöður Taylor (1994) að það
getur aukið sjálfsöryggi fullorðinna að ljúka
viðurkenndri prófgráðu.
Nokkrir viðmælendur töldu sig betur geta
ráðlagt fjölskyldu sinni og tekið á málefnum
hins daglega lífs eins og ef dauðsföll eða
sjúkdómar koma upp í fjölskyldu, eða sjá
um að halda húsinu sínu við (5). Merkja
mátti af niðurstöðum að viðmælendur töldu
áhugamálin fjölbreyttari (5), þeir höfðu kynnst
hlutum sem vöktu áhuga þeirra í náminu og
ef þeir höfðu meira fjármagn milli handanna
gátu þeir leyft sér dýrari áhugamál. Aukin
víðsýni (10) virðist fylgja menntuninni þar
sem fólk taldi sig hæfara til að skoða ýmis mál
út frá ólíkum sjónarhornum. Jafnframt benda
niðurstöður til að með menntuninni hvetji fólk
bömin sín frekar til að læra (4).
Vera má að líkanið á 1. mynd gefi vís-
bendingu um þann mannauð sem býr
f fullorðnu fólki sem hefur lokið námi á
háskólastigi. Þannig er gildi mannauðsins
meira ef þekking á sérsviði fer saman við það
starf sem viðkomandi gegnir að námi loknu.
Hafi hann hins vegar öðlast almenna færni sem
miðar að því að rækta ákvörðunartöku þá hefur
það gildi á fleiri sviðum í atvinnulífi. Einnig
má sjá að gert er ráð fyrir að atvinnuástand
og atvinnugreinar geti haft um það að segja
hver mannauðurinn er. Þegar vel gengur er
gildið meira en þegar verr gengur. Einnig
er hægt að taka mið af mismunandi ástandi
eftir atvinnugreinum. Þannig þarf að gera
ráð fyrir að í þeim þjóðfélögum þar sem
atvinnuástand er gott í öllum atvinnugreinum
og menntakerfið í heild er gott skili kerfið
hámarks mannauði. Einnig er gert ráð fyrir að
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004