Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 148
Kári Kristinsson, Tinna Dahl Christiansen og Friðrik Eysteinsson
1972 og fundu að bæði val á háskólum og
meðaleinkunn hefði jákvæð áhrif á viku-
legar tekjur. James, Alsalam, Conaty og
To (1989) gerðu rannsókn til þess að meta
meðal annars áhrif gæða skóla á framtíðar-
tekjur. Þau komust að því að einkaskólar
í austurfylkjum Bandaríkjanna (sem til-
heyra frekar yfirstétt en aðrir landshlutar)
njóta mikilla yfirburða eða 5% fram yfir
ríkisskóla. Brewer, Eide og Ehrenberg
(1999) greindu einnig gagnasafn NLS þar
sem þeir stýrðu fyrir hugsanlegri vals-
kekkju sem rekja má til vals einstaklinga
á háskólum. Niðurstöður þeirra sýndu að
mikill fjárhagslegur ávinningur fylgdi því
að hafa stundað nám við úrvals einkahá-
skóla (e. elite private college) og lítill fjár-
hagslegur ávinningur fylgdi því að hafa
stundað nám í miðlungs einkaháskóla
í samanburði við lágt metinn ríkisskóla
(Brewer o.fl., 1999). Taka verður fram að
þó erlendar rannsóknir bendi til þess að
nemendur úr einkaskólum njóti fjárhags-
legs ávinnings er umhverfið á íslandi að
mörgu leyti frábrugðið því sem gerist er-
lendis. Erlendis eru einkaskólar oft í mun
betri aðstöðu til að velja inn bestu einstak-
lingana en einkaskólar á íslandi.
Niðurstöður rannsókna sýna að nem-
endur úr einkaskólum njóti fjárhagslegs
ávinnings umfram nemendur úr ríkisskól-
um. Því er eftirfarandi tilgáta sett fram:
Tilgáta 2: Nemanda úr einkaskóla (HR)
eru boðin hærri laun en nemanda úr ríkis-
skóla (HÍ).
Einkunnir
Háskólar eru mjög mismunandi þegar
kemur að einkunnagjöf, þó að skólar séu
almennt svipaðir þegar kemur að því að
velja inn nemendur eftir námsárangri
þeirra (Moore, Swift, Sharek og Gino,
2010). Meðaleinkunn úr háskóla gefur
að einhverju leyti til kynna frammistöðu
nemenda f námi en einnig eru aðrir þættir
sem hafa áhrif, eins og sérviska kennara
við einkunnagjöf og val nemenda á nám-
skeiðum (Berry og Sackett, 2009). Meðal-
einkunn endurspeglar mismunandi breyt-
ur eftir því frá hvaða skóla nemandinn
útskrifaðist. Innihald námskeiða er ekki
það sama milli skóla þó að nöfn þeirra séu
mögulega eins auk þess sem námskeið
geta verið mismunandi innan sama skóla
eftir því hver kennir þau (Bretz Jr, 1989).
Loks mælir meðaleinkunn einungis árang-
ur nemenda í þeim námskeiðum sem hann
hefur tekið (Bretz Jr, 1989).
Ein helsta matsvillan sem fólk gerir
þegar verið er að áætla um eiginleika ein-
staklings, eins og til dæmis gáfnafar, er til-
hneigingin til þess að vanmeta áhrif um-
hverfisins (mildi kennarans við einkunna-
gjöf) og ofmeta eðlisfar einstaklingsins
(Moore o.fl., 2010). Moore, Swift, Sharek
og Gino (2010) gerðu þrjár rannsóknir þar
sem þátttakendur mátu meðal annars fer-
ilskrár umsækjenda, þar sem upplýsingar
um meðaleinkunn komu fram, ásamt
meðaleinkunn nemenda skólans í heild.
Niðurstöður allra þriggja rannsóknanna
sýndu að upplýsingar um erfiðleikastig
voru hundsaðar við mat á frammistöðu
nemenda. Þannig græða nemendur sem
eru með háar einkunnir úr skólum sem
hneigjast til að gefa háar einkunnir. Niður-
stöðurnar benda því til þess að matsvillur
146