Ægir - 01.07.2016, Page 6
6
Framundan er stórsýningin Sjávarútvegur 2016 í Laugardalshöll,
dagana 28.-30. september næstkomandi. Þetta tölublað Ægis er
helgað sýningunni og verður því dreift til áskrifenda og á sýn-
ingunni sjálfri.
Sýningin Sjávarútegur 2016 / Iceland Fishing Expo markar
ákveðin tímamót því um er að ræða fyrstu alþjóðlegu sjávarút-
vegssýninguna hér á landi sem alfarið er sett upp af íslenskum
aðilum. Á sýningunni kynna á annað hundrað fyrirtæki vörur
sínar og þjónustu, auk þess sem bryddað er af hálfu sýningar-
haldara upp á viðburðum samhliða henni þar sem m.a. verða
veitt verðlaun til þeirra sem þykja hafa staðið fram úr í íslensk-
um sjávarútvegi að undanförnu.
Sjávarútvegssýning er á margan hátt eins og gott ættarmót.
Þetta er vettvangur þeirra sem starfa í sjávarútvegi og í kringum
greinina, áhugafólks um sjávarútveg en síðast en ekki síst er
sýningin vettvangur til kynningar á vörum og þjónustu fyrir
sjávarútveg. Ekki aðeins dýrmætur vettvangur sem slíkur fyrir
íslensk tækni- og þjónustufyrirtæki heldur nota fjölmörg erlend
fyrirtæki einnig tækifærið til að kynna fyrir íslenskum sjávarút-
vegi hvað þau hafa að bjóða.
Útgáfa Ægis gefur innsýn í það sem margir sýnenda ætla að
kynna á sýningunni og þarf ekki frekari vitnanna við um fjöl-
breytileikann sem verður að finna í sölum Laugardalshallar um-
rædda daga. Höllin verður sannarlega suðupottur hugmynda og
nýjunga í sjávarútvegi þessa daga og enginn vafi að þaðan koma
bæði gestir og sýnendur margs fróðari.
Sjáumst á sýningunni Sjávarútvegi 2016.
Það er okkur
eðlislægt
Afkastamikil, hagkvæm og níðsterk skilvindutækni og
heildstæðar framleiðslulínur fyrir fi skiðnaðinn frá GEA.
Við höfum staðið vaktina síðan árið 1929 og láréttar og
lóðréttar skilvindur okkar hafa verið stöðugt í gangi við:
• hefðbundin fi skimjölskerfi
• 3-fasa vinnslu
• heilfi sk vinnslu fi skimjöls
• framleiðslu á surimi
• úrvinnslu í ensímvinnslu
• meðferð á skolvatni frá niðursuðu
• meðferð á blóðvatni frá fi skidælum
GEA – verkfræðilausnir til að bæta heiminn
GEA Iceland ehf
Dalvegi 16A, 201 Kópavogur
Sími: 564 28 88
e-mail: baldvin.loftsson@gea.com
G
EA
-R
R-
02
-0
08
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Augljós miðlun. Sími 515-5206. GSM 898-8022.
Net fang: inga@athygli.is Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf. Suðurlandsbraut 30. Reykjavík. Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5900 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 10-11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
Sýningin
Sjávarútvegur 2016
– suðupottur hugmynda og nýjunga
Jóhann Ólafur
Halldórsson
skrifar