Ægir

Volume

Ægir - 01.07.2016, Page 20

Ægir - 01.07.2016, Page 20
20 Skaginn á Akranesi og 3X Technology á Ísafirði eru sem kunnugt er leið-andi á heimsvísu í þróun, hönnun og smíði á ýmsum búnaði fyrir sjávarútveg- inn, bæði á sjó og landi. Hafa fyrirtækin um skeið boðið upp á breiða línu af tækj- um og búnaði fyrir stærri ferskfiskskip sem miða að því að auka gæði hráefnisins og tryggja þannig verðmætari vöru. Nú hefur verið þróuð ný útgáfa af kerfinu til notkunar í smærri bátum. Ragnar A. Guð- mundsson, sölustjóri hjá Skaganum3X, segir þennan nýja búnað mikið framfara- spor í meðferð afla í smábátum. Þá hafa skipstjórar og útgerðarmenn lýst ánægju sinni með þessa lausn sem stórbætir með- ferð aflans og eykur verðmæti sjávar- fangsins. Rotex kerfi í minni báta „Fram til þessa hafa menn litið á það sem sjálfsagðan hlut að fullkomin aðgerðar- kerfi væru sett um borð í stærri báta og fiskiskip. Eftir mikil og gagnleg samskipti við sjómenn og útgerðarmenn höfum við þróað kerfi sem byggja á Rotex tækninni og henta afar vel um borð í minni bátum. Ég er nýkominn af sjávarútvegssýningu í Noregi þar sem við seldum slíkt kerfi um borð í 11 metra bát og kaupendur eru ánægðir með val- ið og spenntir fyrir kerfinu. Fleiri útgerðir í Noregi hafa lýst áhuga sínum á þessum búnaði,“ segir Ragnar en hann er mjög bjartsýnn á frekari landvinninga í Noregi enda stendur fyrir dyrum talsverð upp- bygging í sjávarútvegi þar. Aðgerðarkerfið samanstendur m.a. af blóðgunarkassa, Rotex blæðingartanki, kælikari og meðaflakörum auk annars búnaðar. „Þessum búnaði er ætlað að tryggja jafna og skjóta blæðingu og örugga kælingu aflans áður en hann fer í lest. Blæðingartankurinn tryggir að full stjórn er á blæðingu fisksins og kerfið tryggir líka að við náum hámarks kælitíma á afl- anum. Þannig hægir mjög á dauðastirðnun fisksins og því hægt að stýra vinnslunni á sem hagkvæmastan hátt þegar komið er í land. Allt þetta tryggir betri gæði hráefnis- ins auk þess sem geymslutími ferskrar vöru lengist talsvert. “ Reynst vel í Gullhólma Einn af þeim bátum sem þetta nýja kerfi var sett í nýverið er Gullhólmi SH-201, tæplega 30 brúttótonna plastbátur sem gerður er út frá Stykkishólmi. Sigurður Ágústsson, framkvæmdastjóri Agustson ehf., sem gerir bátinn út, segir að við smíði bátsins hafi verið ákveðið að nota aðeins bestu og nýjustu tækni um borð. Lausnir 3X Technology hafi fallið vel að þeirra hugmyndum og kröfum um fyrsta flokks vinnslu aflans. Sigurður Þórarinsson, skipstjóri á Gull- hólma, segir aðgerðarkerfið hafa reynst mjög vel en það tryggi jafna og góða blæðingu aflans auk þess sem vinnu- aðstaða um borð hafi stór- batnað og því allir í hæsta máta ánægðir. Aukið aflaverðmæti er markmiðið Ragnar A. Guðmundsson sölustjóri, sem sjálfur hefur mikla reynslu sem sjómaður á smábátum, segir útgerðarmenn smábáta og sjómenn taka þeirra lausnum afar vel en þær hafa verið seldar í á þriðja tug báta hér heima og erlendis. „Rotex skipalausnin er almennt séð sniðin þannig að hún hentar flestöllum skipum og veiðiaðferðum, línubátum, lag- netabátum, ferskfisktogurum eða frysti- Rotex kerfið ryður sér frekar til rúms Stórbætir meðferð afla í smábátum Ragnar Arnbjörn Guðmundsson, sölu- stjóri hjá Skaganum og 3X Technology: „Rotex búnaðinum er ætlað að tryggja jafna og skjóta blæðingu og örugga kæl- ingu aflans áður en hann fer í lest.“ Rotex aðgerðarkerfið hentar vel um borð í smærri báta ekki síður en stór fiskiskip.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.