Ægir - 01.07.2016, Page 35
35
hefur verið seldur á Íslandi frá árinu 2001.
Síðan þá hefur vöxtur fyrirtækisins verið
ótrúlegur. Íslyft er það fyrirtæki á Íslandi
sem hefur langmestu reynslu í sölu og
þjónustu á rafmagnsbílum og hefur af-
greitt meira en 100 rafmagnsbíla frá Go-
upil og Linde.
Nýlega tókum við umboði fyrir vöru-
húsatæki frá alþjóðlega framleiðandanum
EP Equipment. Fyrirtækið er með fram-
leiðslu í Bandaríkjunum og Kína og er eitt
af fimmtán stærstu fyrirtækjum í fram-
leiðslu á lyfturum og eitt af þeim sem vex
hvað hraðast. Þeir sérhæfa sig í minni
vöruhúsatækjum á mjög samkeppnishæfu
verði. Meðal þekktra fyrirtækja í Banda-
ríkjunum og Evrópu, sem nota mikið af
tækjum frá þeim, eru Coca Cola, DHL,
Pepsi, Amazon, Nestle, Renault, Citroen,
Carrefour og þá er Walmart verslunarkeðj-
an með gríðarlegt magn af tjökkum frá
þeim líka. Frá EP munum við sýna nokkrar
gerðir af keyrslutjökkum og hillulyftur-
um.“
Liðléttingar frá Pixy
Pétur segir að nýlega hafi Íslyft tekið í sölu
Pixy liðléttinga sem framleiddir eru á Ítal-
íu og hafi Íslyft nú þegar náð mestri mark-
aðshlutdeild á þessari tegund af liðlétting-
um. „Þessar viðtökur hafa komið okkur
skemmtilega á óvart, enda reynslan af
þeim verið mjög góð. Tækin eru einstak-
lega vel hönnuð með miklum stöðugleika.
Hægt er að fá margvíslegan fylgihlutabún-
að til notkunar í verktakavinnu og land-
búnaði. Þeir eru með hydróstatísku drifi
sem gerir þá skemmtilega í allri notkun og
búnir aflmiklum díselvélum. Hægt er að fá
tækin með ökumannshúsi með góðri mið-
stöð.
Við höfum verið valin framúrskarandi
fyrirtæki af Creditinfo á hverju ári frá upp-
hafi útnefninganna, eða síðan 2009 og
skilst okkur að aðeins 145 fyrirtækjum
hafi hlotnast sá heiður. Við getum vart
annað en litið björtum augum til framtíðar
og munum við fagna 45 ára afmæli á
næsta ári.“
Merlot skotbómulyft-
arar eru til margra
hluta nytsamlegir og
þekktir fyrir mjög
rúmgóð ökumannshús
og góða yfirsýn öku-
mannsins.
Goupil rafmagnsbíll frá
Íslyft verður kynntur á
sýningunni en þeir hafa
verið mest seldu
rafmagnsbílar á Íslandi
síðustu ár.
islyft.is