Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.2016, Side 76

Ægir - 01.07.2016, Side 76
rbrum.is Allir vita að hvíld er öllum sjómönnum nauð-synleg, ekki síst þar sem vinnutarnir á sjó geta verið langar og strangar og mikilvægt að menn geti hvílst vel á milli þeirra. RB rúm í Hafnarfirði hafa um áratugaskeið framleitt há- gæðadýnur fyrir íslenska flotann, bæði spring- dýnur og svampdýnur þar sem þær eiga betur við. Fyrirtækið var stofnað af Ragnari Björnssyni árið 1943 og þar ræður húsum dóttir hans, Birna Ragnarsdóttir fram- kvæmdastjóri. Svamp- og springdýnur „Í stærri skip flotans eru oftast valdar springdýnur og fara starfsmenn okk- ar um borð í skipin til að taka mál og ráðleggja um besta val á dýnum í hverju tilviki. Einnig er hægt að senda skapalón og málsetningar til fyrirtækisins og fá síðan dýn- urnar sendar. Þannig þjónustar fyr- irtækið viðskiptavini út um allt land. Auk springdýna framleiðum við einnig svampdýnur af öllum stærðum og gerðum. Þær eru í mörg- um tilvikum valkostur í minni bátum í flotanum þar sem að gjarnan þarf að sérsníða,“ segir Birna. Gildi góðrar dýnu er óumdeilt en hún þarf að styðja vel við bakið og skila fólki fersku og tilbúnu til sinna daglegu starfa. Hjá RB rúmum er hægt að fá springdýnur í fjórum gerðum og hverja gerð í fjórum stíf- leikum. Á þennan hátt má segja að dýnan sé „klæðskerasaumuð“ að notandanum. Þá hafa RB rúm sérstöðu þjónustufyrirtækja í þessari grein með því að bjóða viðskiptavin- um sínum endurhönnun á eldri og notuðum dýnum. Bæld og notuð rúmdýna getur þann- ig gengið í endurnýjun lífdaga og sparað not- andanum kostnaðarsama endurnýjun. Springdýna frá RB rúmum er á þennan hátt langtímafjárfesting! „Það er afar mikilvægt að fólk velji sér dýnur sem hæfir þyngd og hæð hvers og eins. Þess vegna bjóðum við upp á mismun- andi stífleika og framleiðum dýnur í þeim lengdum og breiddum sem viðskiptavin- irnir óska eftir. Okkar markmið er að há- marka þægindin og tryggja viðskiptavin- unum endingargóðar dýnur þar sem þeir hvílast vel frá dagsins önn,“ segir Birna Katrín enn- fremur. Hún bætir því við að þau hjá RB rúmum ráðleggi fólki að hafa tvær dýnur í öllum hjónarúmum og tengja þær saman með rennilásum. Vel sofandi ferðamenn! Bygging hótela og gistiheimila um land allt hefur undanfarin misseri verið í fullum gangi enda fjölgar erlendum ferða- mönnum ár frá ári. Að sögn Birnu Ragnarsdóttur hjá RB rúmum í Hafnarfirði hafa starfsmenn fyrirtækisins staðið í ströngu við að smíða rúm fyrir gesti okkar Íslendinga og er ekkert lát á. „Hér hafa starfs- menn stundum lagt nótt við dag en við höfum eftir megni reynt að anna eftirspurninni. Hótelin rísa eitt af öðru og við getum boðið sérsniðnar lausnir og gríðarlega mikið úrval af rúm- um, dýnum og öllu því sem þarf að vera í góðu svefnherbergi.“ Eins og áður sagði er íslensk framleiðsla í boði hjá RB rúm- um og hefur fyrirtækið fyrir löngu getið sér gott orð. Hjá RB rúmum er auk rúma og dýna hægt að fá allt sem þarf í gott svefnherbergi, m.a. sængur- verasett í úrvali, rúmteppi og púða, kistur og náttborð eftir málum, rúmgafla og vandaða heilsukodda. Þá framleiða RB rúm einnig sérhannaðar sjúkra- dýnur. Birna Ragnarsdóttir í RB rúm- um. Þúsundir Íslendinga sofa í rúmum og á dýnum frá RB rúmum, ekki aðeins á landi heldur einnig úti á sjó. Sérsniðnar dýnur fyrir flotann 76
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.