Ægir - 01.07.2016, Page 130
130
Á sýningunni kynnum við fjölbreytt vöruframboð Fossberg en ég vil vekja sérstaka athygli á dönsku
Scangrip vinnuljósunum sem við höfum
verið með í sölu um skeið. Þessi ljós hafa
algera sérstöðu á markaði fyrir vandaða
hönnun og útlit,“ sannkölluð gæðavara á
frábæru verði, segir Gunnar Örn Bene-
diktsson, sölu- og markaðsstjóri Fossberg.
„Við ætlum m.a. að kynna nýja útgáfu
af NOVA línunni frá Scangrip sem saman-
stendur af fimm gerðum endurhannaðra
og umtalsvert endurbættra ljósa. Kostirnir
eru fjölmargir, m.a. allt að 10.000 lumen
lýsing, birtudreifing í fimm þrepum og
ekki síst endurhlaðanlegar útgáfur sem
sýna stöðu rafhlöðunnar og hve lengi ljós-
ið varir á þeirri hleðslu. Þá kynnum við
nýja og enn betri hönnun ljóssins með inn-
byggðu handfangi og einnig nýjan stand
sem hægt er að festa beint á þrífót,“ segir
Gunnar Örn.
„Grindin á NOVA ljósinu er gerð úr
steyptu áli sem gerir það einstaklega sterkt
og höggþolið. Einnig þolir NOVA að vera
utan dyra í hverskonar veðurfari þar sem
það er algjörlega vatnshelt. Ljósið veitir
stöðuga og jafna birtu sem líkist mjög
venjulegri dagsbirtu sem auðvitað er besta
lýsingin fyrir venjulegar vinnuaðstæður.
Þá nýta LED ljósin eins og allir vita orkuna
margfalt betur á við halogenljósin og þau
hita ekki upp rýmið sem þau eru í.“
Scangrip býður auk þessara ljósa upp á
gríðarlega breidd í vinnuljósum. m.a.
handluktir, vasaljós, pennaljós, skoðunar-
ljós, ennisljós, vélahlífarljós og margt
fleira.
Vönduð
vinnuljós frá
Scangrip
Gunnar Örn Benediktsson,
sölu- og markaðsstjóri Foss-
berg.
Danska fyrirtækið Scangrip í
fararbroddi hvað varðar
framleiðslu á LED vinnuljós-
um en Fossberg er með um-
boð fyrir merkið hér á landi.
fossberg.is
FOSSBERG
I Ð N A Ð A R V Ö R U R O G V E R K F Æ R IDugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757 600
Nýjungar frá Scangrip á