Ægir - 01.07.2016, Page 154
154
Bátasmiðjan Rán á Djúpavogi sér-hæfir sig í framleiðslu á bátum og fiskieldiskvíum úr svokölluðu
HDPE plasti. Eigandi fyrirtækisins er Vil-
hjálmur Benediktsson sem er menntaður
og reyndur plastsuðumaður en hann hefur
mikla reynslu í þjónustu fyrir norsk fisk-
eldisfyrirtæki. Verkefni fyrir íslenskt fisk-
eldi fara líka hraðvaxandi og segir Vil-
hjálmur Fenrir bátana frá Rán einmitt til-
valda sem þjónustubáta fyrir fiskeldis-
stöðvarnar. Rán kynnir framleiðslu sína á
sýningunni Sjávarútvegi 2016.
„Fenrir bátana má fá hjá okkur í fimm
stærðum, þ.e. 5,5, 6,5, 7,5, 8,5 og 9,5 metra
langa. Þetta eru kraftmiklir og hraðskreiðir
bátar, búnir öflugum dísilvélum og hafa
t.d. verið útfærðir sem björgunarbátar eða
skemmtibátar,“ segir Vilhjálmur en stærstu
bátana má fá útfærða með stýrishúsi og
ýmsum aukabúnaði.
„Fiskeldisfyrirtækin skiptir miklu máli
að vera með hraðskreiða þjónustubáta
sem geta komist fljótt á milli eldiskvíanna
og lands en líka báta sem þola að liggja
upp við kvíarnar þegar ókyrrt er í sjó.
HDPE plastið er einmitt efni sem þolir slíkt
álag vel og einmitt þess vegna er það valið
í eldiskvíarnar. Ég sé því tækifæri í sölu á
Fenrir bátunum í fiskeldi, bæði hér á landi
og í Noregi en einnig í ýmsa aðra notkun,“
segir Vilhjálmur.
Mörk 2 - 765 Djúpivogur
Símar +354 - 478 1020 / +354 691 1022
villi@boats.is - www.boats.is
FENRIR Vinnubátar
Frístundabátar
Þjónustubátar
Björgunarbátar
Sterkir og endingargóðir
bátar úr HDPE plast.
Fáanlegir í fimm stærðum
og mörgum útfærslum.
Hafðu samband.
Sterkir og hraðskreiðir
Fenrir bátar
Fenrir bátana má fá í fimm stærðum og mörgum útfærslum.
boats.is