Ægir

Volume

Ægir - 01.07.2016, Page 166

Ægir - 01.07.2016, Page 166
166 Þjónusta við sjávarútveg og iðnað hefur verið stór þáttur í starfsemi Kemi ehf. frá upphafi. Fyrirtækið býður meðal annars upp á smurefni frá Interflon sem notuð eru við krefjandi að- stæður. Þær vörur hafa reynst vel og eru mikið notaðar af íslenskum vélstjórum og má þar sérstaklega nefna smurefnið Fin Lube. „Í upphafi beindust áherslur okkar fyrst og síðast að sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði með sölu á smur- og hreinsiefn- um. Með tímanum hefur fyrirtækið stækk- að, vöruframboðið er breiðara og þjónust- an fjölbreyttari. Það hefur orðið mjög mikil vakning hvað varðar viðhaldskostnað hjá fyrirtækjum og reynum við eftir fremsta megni að leiðbeina okkar viðskiptavinum varðandi val á réttum smurefnum og hreinsiefnum“ segir Reynir Óli Reynisson, sölustjóri fyrirtækisins. Öryggisvörur og sérhæfð efni Kemi er með verslun og vöruhús að Tunguhálsi 10 og alla aðra starfsemi fyrir- tækisins. „Einnig erum við með heimasíð- una kemi.is sem gefur okkur möguleika á því að veita enn betri þjónustu eins og okkur er mikið í mun. Talsverð viðskipti fara nú í gegnum vefsíðuna sem er til hag- ræðingar fyrir alla,“ segir Reynir Óli. Ef horft er til vöruframboðs Kemi má nefna öryggisvörur frá 3M sem eru þekkt- ar af gæðum, t.d. lím, límbönd, slípivörur, rafsuðuhjálma (Speedglas), Loctite lím og efnavörur. Í Interflon vörulínunni eru sér- hæfð smurefni sem byggjast á MicPol tækni og Teflon hráefninu, t.d. þurrsmurn- ing, vatnsþolin smurefni og smurfeiti, bæði venjuleg sem og matvælavottuð smurefni. Einnig er fyrirtækið með smur- olíur, glussa, frostlög og smurefni frá Total- Elf, Irving Oil og 77 lubricants. Í hreinsi- efnum fyrir matvælaiðnað er Kemi með vörur frá Novadan sem bjóða uppá alhliða hreinsi- og sótthreinsilausnir. Einnig eru á boðstólum iðnaðar- og olíuhreinsiefni, t.d. NAUTILUS olíu- og sóthreinsir frá Ide Kemi sem er vatnsblandanlegt efni. Sömu- leiðis má nefna Plum handhreinsiefni og augnskol. „Það má segja að ef þig vanti efni í brúsa þá höfum við lausnina,“ segir Reynir Óli. Staðið ströngustu próf Þjónusta Kemi er fjölþætt og nær í seinni tíð til fleiri þátta en áður gerðist. Starfs- menn Kemi veita sömuleiðis góð ráð um val á efnum og leiðbeiningar um notkun örvera til niðurbrots í frárennslislögnum, fitugildrum og rotþróm. Svona má áfram telja. „Sölumenn Kemi búa yfir mikilli þekkingu og margra ára reynslu af þessum vörum ásamt því að hafa sótt námskeið hjá birgjum erlendis. Þá erum við með raf- drifnar smursprautur, olíusugur, ryðfría smurnippla, könnur, tunnudælur og fleira frá LUMAX, gæðavörur sem hafa staðist ströngustu próf framleiðenda og reynst vel á markaði,“ segir Reynir Óli. „Við erum alltaf að auka úrval okkar á vörum tengdum sjávarútvegi og iðnaði. Við vitum að fyrirbyggjandi viðhald er mjög mikilvægt hjá öllum sem standa í at- vinnurekstri og ennþá mikilvægara nú í dag en áður. Að lokum vil ég minna á heimasíðuna okkar og bið þig lesandi góð- ur um að vera í sambandi varðandi lausnir frá okkur.“ Gæðavörur og góð þjónusta hjá Kemi Á myndinni eru frá vinstri: Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri, Eiríkur Jóns- son sölufulltrúi, Lúðvík Matthíasson viðskiptastjóri, Haukur Hauksson verslunar- stjóri og Reynir Óli Reynisson sölustjóri. kemi.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.