Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 41
ATHAFNASKÁLD f SKAGAFIRÐI
var byggt í Reykjavík á sama tíma“. „Að íbúðirnar á
Sauðárkróki eru að öllu leyti boðlegir mannabústaðir
sést best á bréfi húsameistara ríkisins, og fólk það er
íbúðirnar hefir fengið, er ánægt með þær og líður þar
vel“ segir skrifstofustjórinn, sem einnig fór norður á veg-
um félagsmálaráðuneytisins. ... Fleiri hafa notið starfs-
krafta byggingafyrirtækis þess er S.S. stjórnar en Sauðár-
króksbær, því að það hefir staðið að byggingu fjölda
íbúðarhúsa í héraðinu og hvers konar peningshúsa og
einnig séð um byggingu nokkurra brúa. Ekki veit ég
hve fyrirtæki S.S. hefir staðið að byggingu margra
mannvirkja, en þau munu naumast vera undir 130. Má í
því sambandi geta þess, að fyrirtækið hefir séð um smíði
á nær öllum ríkisbyggingum innan héraðsins á nefndu
árabili, og verður að telja slíkt traustsyfírlýsingu frá
hendi þeirra, er sjá eiga um slíka smíði á vegum ríkis-
sjóðs.
Tvö trésmíðaverkstæði voru starfrækt á Sauðárkróki er
Trésmiðja S.S. var sett á stofin, og störfuðu þar jafnan fáir
menn og voru þar af leiðandi fáir trésmiðir í bænum.
S.S. stofnsetti og fyrsta húsgagnaverkstæði í bænum og
útskrifaði nemendur í þeirri grein, þá einu, er lokið hafa
prófi í húsgagnasmíði þar, að ég best veit, og er það ekk-
ert vafamál, að trésmiðjan og húsgagnaverkstæðið hafa
átt mjög mikinn þátt í iðnfræðslu á Sauðárkróki, og
sannar það best að kleift reyndist að koma á fót iðnskóla
þar, er svo margir iðnnemar voru í bænum. Nú er svo
komið, að þorri þeirra iðnaðarmanna er vinna að upp-
byggingu í héraðinu, hafa hlotið menntun sína hjá fyrir-
tækjum Sigurðar og á þetta jafnt við smiði og þá er hlot-
ið hafa sveinsbréf í múrverki. ... Húsgagnaverkstæði S.S.
hefir fengið á sig gott orð, en marka má það af því, að
pantanir berast til þess hvaðanæva af landinu. Tók það
og þátt í iðnsýningunni í félagi við annað fyritæki og
39