Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 190
SKAGFIRÐINGABÓK
ára vinnupiltur tveim árum síðar og er þá sagður frómur og
ráðvandur, sæmilega lesandi og kunnandi.118 Hallgrímur
var enn á Tjörn 1813 en gerðist síðan bóndi á Vatnsenda í
Ólafsfirði, dó þar 31. júlí 1816, ókvæntur og barnlaus.
b) Þórvör, fædd 1789 á Brúarlandi. Hún var hjá foreldrum
sínum í Enni í manntalinu 1801 (þ.e. árið 1803), þá sögð
14 ára en 27 ára í manntalinu 1816. Hún fór vinnukona til
skyldfólks síns vestur í Húnavatnssýslu og varð síðan
bóndakona þar.
c) Guðrún eldri, fædd 1790 á Brúarlandi. Hún er 13 ára fóst-
urbarn á Ljótsstöðum á Höfðaströnd í manntalinu 1801
(þ.e. árið 1803) og varð bóndakona í Óslandshlíð.
d) Egill, fæddur 1792 á Brúarlandi. Hann er 9 ára fósturbarn
á Valabjörgum á Skörðum í manntalinu 1801 (tekið það
ár), hjá Jóni bónda Jónssyni og Guðrúnu Hallsdóttur konu
hans. Þau gerðu vel til Egils, gáfu honum fjórðungsgjöf fjár
síns á manntalsþinginu á Seylu þann 15. júlí 1801.119 Það
kom þó fyrir ekki því að Egill drukknaði í sjóróðri suður í
Njarðvíkum 21. apríl 1813-120
e) Eyjólfur, fæddur 1794 í Enni; er 9 ára hjá foreldrum sínum
í Enni í manntalinu 1801 (þ.e. árið 1803). Hann varð
bóndi í Kolbeinsdal.
f) Solveig, fædd 1795 í Enni; er þar í manntalinu 1801 (árið
1803), sögð 8 ára. Hún fór með föður sínum að Miklagarði
í Eyjafirði og giftist þar.
g) Sigfús, fæddur 15. mars 1797 í Enni; hann finnst ekki í
manntalinu 1801, en mun hafa farið í fóstur til Snjólaugar
föðursystur sinnar og manns hennar, séra Hannesar
Schevings, fyrst í Laufási og frá 1813 á Grenjaðarstöðum.121
Sigfús hefur eflaust verið hjá foreldrum sínum 1801 en lík-
lega verið kominn til Snjólaugar frænku sinnar 1803, þegar
manntalið var tekið í Hofsþingum. Hann varð vel metinn
bóndi í Eyjafirði.
h) Jón, fæddur 1797 í Enni og því líklega tvíburi við Sigfús.
188