Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 216
SKAGFIRÐINGABÓK
beinsdal; 22 ára smali á Skúfsstöðum í Hjaltadal 1816, bóndi í
Smiðsgerði 1833—64 og bjó þar góðu búi um tíma (Skagf.
æviskrár 1850—1890 11:39—41). K. 1: 6. október 1831, Guðlaug
Jónsdóttir, f. 1796 á Litlahóli í Viðvíkursveit, d. 8. apríl 1839
í Smiðsgerði, húsmóðir. For.: Guðrún Guðbrandsdóttir hús-
móðir og m.h. Jón Matthíasson bóndi í Smiðsgerði. Dóttir þeirra:
a) Sigríður. K. 2: 10. nóvember 1842, Sigurlaug Ásgrímsdóttir,
f. um 1791 á Minni-Ökrum í Blönduhlíð, d. 14. maí 1848
í Smiðsgerði, húsmóðir, ekkja Þórðar Þórðarsonar bónda í
Hornbrekku á Höfðaströnd. For.: Guðrún Gottskálksdóttir lög-
réttumanns á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal og síðar bónda á
Þorleifsstöðum í Blönduhlíð Þorvaldssonar og m.h. Ásgrímur
Dagsson bóndi á Minni-Ökrum. Þau voru barnlaus en sonur
Sigurlaugar af fyrra hjónabandi var Kristinn Þórðarson bóndi í
Teigi. K. 3: 23. júlí 1854, Þorbjörg Guðmundsdóttir, f. 1823 á
Skúfsstöðum í Hjaltadal, d. 1874 á Sóru-Seylu á Langholti, hús-
móðir. For.: Guðrún Jónsdóttir húsmóðir og m.h. Guðmundur
Ólafsson bóndi á Skúfsstöðum og Skriðulandi. Börn þeirra: b)
Sigfús, c) Friðrik, d) Soffía.
2a Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 1833 í Smiðsgerði, d. 1879 á Lág-
múla á Skaga, húsmóðir í Hringveri í Hjaltadal 1859-62,
Axlarhaga í Blönduhlíð 1862—63, Kjarvalsstöðum 1863—70, Fossi
á Skaga 1870—71, Gauksstöðum 1871—75 og áfram eftir skilnað
þeirra hjóna til 1876 en bjó síðan í Kleifarseli á Skaga. M.: 31.
október 1856, skildu 1875, Kristján Guðlaugsson, f. 1829 í
Mýrarkoti á Tjörnesi, d. 1894 á Neðra-Skúfi í Norðurárdal, bóndi
á ofangreindum stöðum og í Pottagerði 1879—81 og Ketu í
Hegranesi 1881—87 en fór þá að Mýrarkoti á Skagaströnd (Skagf.
æviskrár 1850—1890 1:178) For.: Þorbjörg Pétursdóttir og m.h.
Guðlaugur Kristinsson bóndi í Mýrarkoti. Dætur þeirra: a) Anna
Elín, b) Guðlaug Kristína.
3a Anna Elín Kristjánsdóttir, f. 1863. M.: Jónas Jónasson,
húsmaður á Hellulandi.
3b Guðlaug Kristína Kristjánsdóttir, f. 1871. Var hjá föður
sínum í Ketu en fór þaðan að Páfastöðum.
2b Sigfús Eyjólfsson, f. 25. júlí 1849 í Smiðsgerði, d. 20. febrúar
214